Fríða Jónsdóttir gullsmiður hlaut Skúlaverðlaunin
2009 fyrir verkið “Fjölin hennar ömmu” á sýningunni HANDVERK OG HÖNNUN
í Ráðhúsinu.
Fríða hannaði skartgripalínu sem byggir á munstrum í fjöl sem amma hennar skar út.
Verðlaunin eru styrkt af Samtökum iðnaðarins og framkvæmdastjóri samtakanna Jón Steindór Valdimarsson afhenti þau á opnunarkvöldi sýningarinnar.
Efnt var til verðlaunasamkeppni um besta nýja
hlutinn meðal þátttakenda í sýningunni. Rúmlega fjörutíu tillögur
bárust frá 22 aðilum. Verðlaunin eru kennd við Skúla Magnússon fógeta
sem er frumkvöðull smáiðnaðar í Reykjavík. Faglega valnefnd skipuðu Anna Snædís Sigmarsdóttir
myndlistarmaður og kennari í Tækniskóla Íslands og Helga Björg
Jónasardóttir vöruhönnuður.
Tvær viðurkenningar voru veittar við þetta tækifæri, auk Skúlaverðlaunanna. Inga Elín fékk viðurkenningu fyrir verkið “Skeljar” sem eru kertastjakar úr þunnu postulíni og Margrét Guðnadóttir fékk viðurkenningu fyrir verkið “Hangandi hnoðri” sem er spiladós úr íslenskri óklipptri gæru.
Nánari upplýsingar um verðlaunin og sýninguna má nálgast á vef
Handverks og hönnunar en auk þess má sjá verk Fríðu á vefsíðu hennar
www.fridaskart.is