Fréttir

29.10.2009

Handverk og hönnun í Ráðhúsi Reykjavíkur



Ráðhús Reykjavíkur mun iða af lífi og listum um næstu helgi. Þar verður haldin stór sýning/kynning á íslensku handverki, listiðnaði og hönnun. Þetta er í fjórða skipti sem HANDVERK OG HÖNNUN skipuleggur sýningu af þessu tagi.

Sýningin hefur vakið mikla athygli undanfarin ár og mörg þúsund manns hafa lagt leið sína í Ráðhúsið þessa helgi. Sérstök fagleg valnefnd valdi 59 einstaklinga til þátttöku en umsóknir voru yfir eitt hundrað. Á sýningunni eru það listamennirnir sjálfir kynna vörur sínar. Eitt af markmiðum þessarar sýningar/kynningar er að gestir hitti fólkið á bak við hlutina. Þetta er kjörið tækifæri fyrir almenning að kynna sér fjölbreytt íslenskt handverk, listiðnað og hönnun.                            

Skúlaverðlaunin 2009
Á fyrsta degi sýningarinnar eða föstudaginn 30. okt. kl. 19.00 verða Skúlaverðlaunin 2009 afhent. Skúlaverðlaunin eru nú afhent í annað skipti en þau eru kennd við  Skúla Magnússon fógeta sem er frumkvöðull smáiðnaðar í Reykjavík. Hugmyndin er að hvetja þátttakendur til nýsköpunar og vöruþróunar. Þátttakendur í sýningunni í Ráðhúsinu gátu tilkynnt til HANDVERKS OG HÖNNUNAR ákveðna nýja vöru í verðlaunasamkeppni um besta nýja hlutinn. Rúmlega fjörutíu tillögur bárust frá 22 aðilum. Fagleg valnefnd valdi vinningshafa Skúlaverðalaunanna. Samtök iðnaðarins styrkja Skúlaverðlaunin 2009.  

Opnunartími er:
Föstudagur 30. október kl. 10 – 19
Laugardagur 31. október  kl. 12 – 18
Sunnudagur 1. nóvember kl. 12 – 18
Mánudagur 2. nóvember kl. 10 - 19

Allar nánari upplýsingar um sýninguna og þátttakendur er að finna á vef HANDVERKS OG HÖNNUNAR.
















Yfirlit



eldri fréttir