Fréttir

20.10.2009

Málþing og kynning | Þorpið - skapandi samfélag á Austurlandi

Dagana 27. - 29. október nk. verður  hönnunar- og nýsköpunarverkefnið Þorpið – skapandi samfélag á Austurlandi kynnt formlega með tveimur kynningarkvöldum í Sláturhúsinu á Egilsstöðum og síðan verður blásið til málþings á Eiðum fimmtudagskvöldið 29. október. 

Verkefninu er ýtt úr vör af stoðstofnunum á Austurlandi þ.e. Menningarráði Austurlands, Þróunarfélagi Austurlands og Þekkingarneti Austurlands í samstarfi við Fljótsdalshérað.

Þorpið er tilraunaverkefni til eins árs til og er ætlunin að byggja upp skapandi samfélag á Austurlandi á sviði  hönnunar og handverks. Þorpið verður í samstarfi við fjölmarga aðila á Austurlandi um mismunandi verkefni sem öll lúta að því að skapa atvinnu á sviði hönnunar og framleiðslu á nytjahlutum.  Verkefnið er  öflugur klasi þar sem samnýting fjármuna og mannauðs fer saman. 

Á málþinginu á Eiðum verða margir spennandi fyrirlesarar m.a. Martina Lindberg frá Finnlandi en hún mun kynna uppbyggingu á listamannasamfélagi í Fiskars í Finnlandi.  Einnig munu framkvæmdastjórar Hönnunarmiðstöðvar Íslands og Hugmyndahúss Háskólanna flytja fyrirlestra.

Skráning á málþingið fer fram hjá Þekkingarneti Austurlands í síma 471 2838 eða með tölvupósti á netfangið tna@tna.is.
Skráningargjald á málþingið er 3000 kr. og eru veitingar innifaldar í verðinu.


Dagskrá málþingsins er að finna hér.


















Yfirlit



eldri fréttir