Fréttir

20.10.2009

LAVA 09 | Ráðstefna

Alþjóðleg ráðstefna Norðurslóðaáætlunar LAVA 09 verður haldin í Iðnó, Reykjavík dagana 10.-11. nóvember 2009.

Þema ráðstefnunnar er atvinnusköpun með áherslu á sóknarfæri sem felast í tengingu hefðbundinna atvinnugreina við skapandi greinar. Í tengslum við ráðstefnuna verður kynning á fjölbreyttum verkefnum sem Ísland tekur þátt í innan Norðurslóðaáætlunar 2007-2013 í Ráðhúsi Reykjavíkur.

Lögð er áhersla á virkt samstarf og tækifæri sem liggja í samstarfi hefðbundinna atvinnugreina og skapandi iðnaðar. Hvernig getur aðkoma skapandi greina aukið framþróun og virði fyrirtækja og stofnanna.

Þátttakendur verða yfir 100 og koma frá öllum 9 þátttökulöndum Norðurslóðaáætlunar þ.e. Noregi, Svíþjóð, Finnlandi, Færeyjum, Grænlandi, Írlandi, Skotlandi, Norður Írlandi auk Íslands.  

Nánari upplýsingar og skráning þátttöku er á heimasíðu ráðstefnunnar LAVA 09.

Rétt er að vekja athygli á því að þáttökugjald fyrir ráðstefnuna án kvöldverðar er 15.000 kr., en það er gefið upp sem 80 Evrur á skráningarsíðunni. Kvöldverðurinn í Perlunni verður c.a. 10.000 kr. og þá er vín innifalið.

Skráning þátttöku lýkur þann 23. október.

















Yfirlit



eldri fréttir