Fréttir

7.2.2010

Hönnunarsamkeppni | Minjagripur fyrir Reykjavík

Reykjavíkurborg og Hönnunarmiðstöð Íslands standa fyrir keppni um hönnun minjagrips fyrir Reykjavík.

Keppnin er öllum opin og felst í því að hanna nýjan og einkennandi minjagrip fyrir Reykjavík. Verðlaunatillagan skal endurspegla vörumerki Reykjavíkurborgar, Reykjavík - Pure Energy. Vörumerkið vísar til þeirrar hreinu orku sem sem Reykjavík býr yfir í fleiri en einni merkingu: í náttúrunni, vatninu, menningunni og sköpunarkraftinum.

Minjagripurinn verður einkennisgripur Reykjavíkur, seldur víða í borginni.

Verðlaunahafi hlýtur 600.000 kr. verðlaun.

Dómnefnd
Áslaug Friðriksdóttir, formaður Menningar- og ferðamálaráðs
Sif Gunnarsdóttir, forstöðumaður Höfuðborgarstofu
Guðrún Erla Geirsdóttir, Menningar- og ferðamálaráð
Kristján Örn Kjartansson, arkitekt FAÍ
Tinna Gunnarsdóttir, iðnhönnuður
Hörður Lárusson, grafískur hönnuður FÍT
Halla Helgadóttir, framkvæmdastjóri Hönnunarmiðstöðvar

Keppnin hefst 14. október. Tillögum skal skila fyrir kl. 17.00, mánudaginn 15. febrúar 2010. Úrslit samkeppninnar verða kynnt á HönnunarMars 2010 en sýning á völdum innsendingum fer fram á sama tíma.


Nánari upplýsingar um samkeppnina er að finna hér.
















Yfirlit



eldri fréttir