Auglýst eru til umsóknar starfslaun listamanna sem úthlutað verður
árið 2010, í samræmi við ákvæði laga nr. 57/2009 með áorðnum breytingum.
Starfslaunin eru veitt úr sex
sjóðum, þ.e.:
1. launasjóði hönnuða,
2. launasjóði
myndlistarmanna,
3. launasjóði rithöfunda,
4. launasjóði
sviðslistafólks,
5. launasjóði
tónlistarflytjenda,
6. launasjóði tónskálda.
Vakin er sérstök athygli á að umsækjendum er gert að sækja um á rafrænu
formi á vef Stjórnarráðsins á vefslóðinni
http://umsokn.stjr.is fram til
mánudagsins
19. október 2009. Aðgangur er
veittur á kennitölu umsækjanda (ekki kennitölu félags eða samtaka) og verður
lykilorð sent viðkomandi á netfang sem hann gefur upp við nýskráningu.
Lykilorðinu má breyta eftir innskráningu með því að opna Mínar stillingar.
Umsækjendur skrá sig inn með kennitölu og lykilorði og velja Stjórn
listamannalauna undir flipanum Umsóknir. Þar eru umsóknareyðublöðin. Svæði merkt rauðri stjörnu verður að fylla út.
Fylgigögnum með umsókn sem ekki
er hægt að senda rafrænt skulu berast Skrifstofu Stjórnar listamannalauna,
Hallveigarstöðum, Túngötu 14, 101 Reykjavík fyrir kl. 17:00 mánudaginn 19.október 2009.
Með umsókn skal fylgja greinargerð um verkefni það sem liggur til
grundvallar umsókninni ásamt upplýsingum um hve langan starfstíma er sótt um og
rökstuðningi fyrir tímalengd. Jafnframt skulu fylgja upplýsingar um náms- og starfsferil,
verðlaun og viðurkenningar. Þessir þættir
skulu að jafnaði liggja til grundvallar ákvörðun um
úthlutun starfslauna.
Athugið að hafi umsækjandi áður hlotið starfslaun verður umsókn hans því
aðeins tekin til umfjöllunar að hann hafi skilað Stjórn listamannalauna skýrslu
um störf sín í samræmi við ákvæði 4. gr. laga um listamannalaun nr. 57/2009 með
áorðnum breytingum.
Nánari upplýsingar og leiðbeiningar fást á vef Stjórnar listamannalauna
www.listamannalaun.is
eða á skrifstofunni í síma 562 6388.
Umsóknarfrestur rennur út mánudaginn 19. október 2009.
Stjórn listamannalauna