Bók Eggert Péturssonar, Flóra Íslands, fékk silfurverðlaun í keppni
evrópskra hönnuða og auglýsingastofa sem fram fór í Barcelona í júní
síðastliðnum. Það voru þær Snæfríð Þorsteins og Hildigunnur
Gunnarsdóttir sem hlutu þessi verðlaun en þær höfðu áður hlotið
verðlaun FÍT í flokki grafískrar hönnunar fyrir prentmiðla fyrir þessa
bók.
Í fréttaskýringu í Fréttablaðinu segir:
„Þetta er alveg glæsilegt og árangurinn þýðir að við getum sent
bókina í enn stærri keppni," segir Hörður Lárusson, formaður FÍT. Bókin
hlaut verðlaun í flokki bóka, bókverka og ársskýrslna en að sögn Harðar
munaði aðeins einu atkvæði að hún hefði komið heim með gull. „Það
virðast bara vera örlög okkar að fá silfur," segir Hörður en eins og
flestir ættu að vita varð Jóhanna Guðrún í öðru sæti í Eurovision og
silfrið í Peking mun seint gleymast. „Bókin er náttúrulega alveg
ótrúlega flott, hún er miklu meira en bara bók, hún er listaverk,"
útskýrir Hörður og bætir því við að keppinautar hennar hafi flestir
komið af auglýsingasviðinu. „Sem gerir árangur hennar bara enn betri." Hörður
bætir því þó við að margir hafi komið að máli við sig eftir að dómnefnd
hafði kveðið upp sinn dóm og sagt að bókin hefði átt skilið að vinna.
„Það var hins vegar þýsk bók, Hide & Seek Booklet, sem vann. Hún er
líka nokkuð flott."
Flóra Íslands er án nokkurs vafa ein stærsta og
veglegasta bókin sem gefin hefur verið út. Hún er 560 síður, með
teikningum eftir Eggert Pétursson, einn fremsta samtímalistamann
þjóðarinnar. Bókin er aðeins gefin út í fimm hundruð eintökum sem hvert
og eitt er tölusett og áritað af Eggerti. Hún kostar 75 þúsund krónur.