Fréttir

7.7.2009

Reykjavík Eyes hlýtur hin virtu Red Dot Design hönnunarverðlaun

 
Gunnar Gunnarsson verðlaunaður.
 
Gunnar Gunnarsson sjóntækjafræðingur og hönnuður hjá Reykjavík Eyes hlaut á dögunum evrópsku Red Dot Design verðlaunin fyrir hönnun og þróun gleraugnaumgjarða sem framleiddar eru undir merki Reykjavík Eyes. Verðlaunin voru afhent við hátíðlega athöfn í Essen í Þýskalandi. Meðal verðlaunahafa í ár voru hönnuðir sem vinna fyrir heimsþekkt vörumerki á borð við BMW, Sony, Tag Heuer, Apple og Dell.  Í vor hlaut Gunnar verðlaun Universial Design Awards fyrir þá tækni sem liggur að baki framleiðslu Reykjavík Eyes umgjarðanna.

„Það er alltaf gaman að fá verðlaun því þau eru viðurkenning á því að maður sé að gera eitthvað af viti,“ segir Gunnar í samtali. „Gleraugun okkar unnu í flokki aukahluta en þar keppa hönnuðir úra, skartgripa, tölva o.fl.  Þetta eru afar eftirsótt verðlaun og ég get ekki verið annað en ánægður með að hreppa þau í ár. Þessi verðlaun og einnig þau sem ég tók á móti í vor hvetja okkur til frekari dáða en Reykjavík Eyes mun á næstu vikum bæta mjög við vöruframboðið,“ segir Gunnar ennfremur.

Hin eftirsóttu Red Dot Design verðlaun hafa verið veitt árlega frá árinu 1955 og er keppt í þremur meginflokkum. Í ár bárust 3.231 tilnefning tilnefningar frá 49 löndum.  Gleraugnaumgjarðir Reykjavík Eyes hafa hlotið lof fyrir hönnun formsins en ekki síður fyrir það hversu léttar þær eru og einfaldar að allri gerð. Umgjörðin er skorin úr örþunnri títanplötu  og þar er ekki að finna neinar samsetningar, skrúfur eða aðra aukahluti.

Reykjavík Eyes hefur gert samning við dreifingarfyrirtækið Andrew Actman Ltd. um dreifingu í Bretlandi og sala í Danmörku mun hefjast á næstunni. Þá fást umgjarðirnar í Auganu í Kringlunni, verslunum Pro Optik, Linsunni og Geisla á Akureyri.


















Yfirlit



eldri fréttir