Listasafn Reykjavíkur | Kjarvalsstaðir | Sýningin stendur frá 15. maí til 9. ágúst
|
|
|
|
Yfirlitsmyndir frá sýningunni.
Ljósmyndari: Ingvar Högni Ragnarsson
|
Fátt er eins lýsandi fyrir mannlegt samfélag og það umhverfi sem
maðurinn hefur mótað til daglegra athafna. Segja má að í manngerðu
umhverfi birtist spegilmynd hönnunarsögunnar; ólíkar myndir hönnunar,
breytilegar eftir tíðaranda, gildismati, ríkjandi hugmyndafræði,
túlkun og aðstæðum hverju sinni.
Á sýningunni er sýnd íslensk samtímahönnun þar sem er unnið með tengsl
þriggja hönnunargreina sem eiga stóran þátt í því að móta manngert
umhverfi með samspili sín á milli. Á sýningunni er samhengi þeirra skoðað og hvernig þær eru samofnar mannlegri hegðun allt frá því að
eiga þátt í að skipuleggja tímann, væta kverkarnar eða verja okkur
fyrir náttúruhamförum. Sýnd eru gríðarstór mannvirki og fínleg
nytjahönnun sem eiga þó það sameiginlegt að tilheyra manngerðu umhverfi
og vera mótandi þáttur í því.
Sýningunni er ætlað að vera spegill þess sem
telja má á einn eða annan hátt gæði í íslenskri hönnun undanfarin ár og
gefa ákveðna mynd af íslenskri samtímahönnun. Þar sem góðar hugmyndir
hafa þroskast af faglegum metnaði, alvöru og skynsemi; hugmyndir sem
eru unnar til enda í anda hugsunarháttar sem vert er að setja á oddinn
í dag. Markmiðið er að árétta gildi góðrar hönnunar og öflugs hugvits
fyrir mannlegt samfélag - verðmæti til að virkja til framtíðar.
Sýningunni er ætlað að kynna brot af því besta sem er að
gerast í íslenskri hönnun í dag með áherslu á húsgagna- og vöruhönnun
og arkitektúr. Sýnd eru verk frá um 20 hönnuðum sem eru valin með það
í huga að eiga erindi ytra til frekari kynningar, sölu eða framleiðslu.
Samhliða hönnunarsýningunni er kynning á verkum ungra, efnilegra
hönnuða í samvinnu við Hönnunarsjóð Auroru. Sýningarstjóri er Elísabet
V. Ingvarsdóttir. Sýningin er samstarf Listasafns Reykjavíkur og Hönnunarmiðstöðvar
Íslands og er á dagskrá Listahátíðar í Reykjavík.
Þátttakendur og verk á sýningunni:
Katrín Ólína
Cristal Bar, Hong Kong
Kurtogpí
Menntaskóli Borgarfjarðar
Landmótun
Lækurinn (umhverfi,hfj.)
Landslag ehf
Snjóflóðavarnir á Siglufirði
pk-arkitektar
birkimörk (heimili f. fötluð ungmenni)
+ARKITEKTAR
Hótel Borg (innviðir endurgerð)
Rut Káradóttir
heimili
Studio Granda
Hof Höfðaströnd
VA Arkitektar
Bláa Lónið –Lækningalind
Tinna Gunnarsdóttir
Fluga (garðborð)
Guðrún Lilja Gunnlaugsdóttir
Visual inner structure (stóll)
Kristín Sigfríður Garðarsdóttir
munnblásið gler (glös,karöflur, og skálar)
Ingibjörg Hanna
Bird Coat Hanger
Stella Design
Fjölskyldan mín (glös)
go form
MGO 182 & MGO 500
Sigríður Sigurjónsdóttir & Snæfríð Þorsteins
Hillurnar eru komnar á fætur (hillur á bambusfótum)
Stefán Pétur Sólveigarson
Skrauti (kertastjaki)
Snæfríð Þorsteins & Hildigunnur Gunnarsdóttir
2922 dagar (dagatöl)
AÐalsteinn Stefánsson & Aleksej Iskos
Ornametrica (loftljós)
DOGG DESIGN
Rocky Tre (ruggustóll)
DOGG DESIGN
HEKLA & KÍNA (hnífapör og prjónar)
Hrafnkell Birgisson
Hábolli
Erla Sólveig Óskarsdóttir
Sproti & Spuni
vaxtarbroddar
Dagur Óskarsson
Dalvíkursleði
Friðgerður Guðmundsdóttir
Stuðlar (skilrúm)
Jón Björnsson
Flower Eruption (sandvasar)
Sóley Þórisdóttir
Áhöld
Þórunn Árnadóttir
KLUKKA
www.artfest.is
www.listasafnreykjavikur.is