Fréttir

6.5.2009

Reykjavík Eyes vinnur til alþjóðlegra verðlauna

Íslenska fyrirtækið Reykjavik Eyes vann nýlega til verðlauna á alþjóðlegu hönnunarverðlaununum Universal Design Awards 09 sem afhent voru á CeBit sýningunni í Þýskalandi fyrir skömmu. Reykjavik Eyes fékk verðlaun fyrir byltingarkennda hönnun á gleraugnaumgjörðum. Þetta er í fyrsta sinn sem íslensk hönnun hlýtur þessi eftirsóttu verðlaun, en meðal annarra verðlaunahafa í ár voru fyrirtæki á borð við  Fujitsu, Panasonic og Microsoft. Vinningshafar árið 2008 voru meðal annars iPod og iPhone frá Apple.                                              

EINSTÖK VERKFRÆÐILEG NÝSKÖPUN
Reykjavik Eyes fékk verðlaun í flokknum „frístundir / lífstíll“ (e. Leisure/Livestyle) en dómnefndin samanstóð af alþjóðlegum sérfræðingum á sviði hönnunar. Í umsögn hennar kemur meðal annars fram að umgjarðir Reykjavík Eyes séu með þeim léttustu og sterkustu sem framleiddar hafa verið og að þær séu einstök verkfræðileg nýsköpun sökum einfaldleika síns. Gunnar Gunnarsson hjá Reykjavik Eyes segir viðurkenningu sem þessa skipta miklu máli fyrir ungt fyrirtæki sem er að hasla sér völl.

Gleraugnaumgjarðirnar eru afrakstur alveg nýrrar framleiðslutækni sem er árangur yfir fjögurra ára þrotlausar þróunarvinnu. „Gleraugnaumgjörðin er skorin í heilu lagi úr örþunnri títanplötu og er ekki búin neinum skrúfum, hjörum eða öðrum aukahlutum. Hún er því laus við öll samskeyti og suðupunkta sem veikt geta umgjörðina,“ útskýrir Gunnar.

AUGA FYRIR HÖNNUN
Reykjavík Eyes er fyrsta heildstæða, íslenska gleraugnalínan og fæst í Auganu í Kringlunni og verslunum Pro Optik. „Salan hefur farið vel af stað  hér heima og ekki bara vegna þess að um íslenska hönnun er að ræða. Fólk virðist heillast mest  af tækninni og útliti umgjarðanna en styrkur og góð smíði skipta miklu máli við val á gleraugum. Svo spillir ekki fyrir að umgjörðin er með þeim allra léttustu í heimi,” segir Gunnar.

BRETLANDSEYJAR NÆSTA ÁSKORUN Nýlega samdi fyrirtækið við breska dreifingaraðilann Andrew Actman Eyewear um dreifingu til söluaðila víðs vegar um Bretlandseyjar. Framkvæmdastjóri Andrew Actman Eyewear, Andrew Actman, er ánægður með samstarfið og telur gleraugnalínu Reykjavik Eyes afar vænlega fyrir breskan markað: „Við erum mjög ánægð með að vinna með Gunnari og að færa viðskiptavinum okkar þessa merkilegu, nýju vöru. Gleraugun frá Reykjavík Eyes eru bylting þegar kemur að hönnun, með engum skrúfum eða samskeytum. Einkaleyfi á tækninni bíður nú afgreiðslu og við erum fullviss um að þessar umgjarðir muni njóta algjörrar sérstöðu á markaðinum. “ www.reykjavikeyes.com
















Yfirlit



eldri fréttir