Styrkir til atvinnumála kvenna eru lausir til umsóknar. Sótt er um rafrænt á heimasíðunni en að þessu sinni eru 25 milljónir til úthlutunar.
Umsóknarfrestur er til 9. mars.
Reglur vegna styrkveitinga
- Styrkhæf verkefni skulu vera í eigu kvenna (amk 50%) og stjórnað af konum.
- Verkefnið skal fela í sér atvinnusköpun til frambúðar.
- Um nýnæmi skal vera að ræða, annaðhvort nýja vöru/þjónustu eða þróun vöru/þjónustu
- Kröfur eru gerðar um að viðskiptahugmynd sé vel útfærð, markmið skýr og leiðir að þeim vel útfærðar.
- Verkáætlun skal vera vel útfærð og raunhæf og kostnaðar og tekjuáætlun vönduð, skýr og trúverðug.
- Kröfur eru um að verkefnið skekki ekki samkeppnisstöðu á þeim markaði sem varan eða þjónustan er á.
- Hámarksstyrkur er að jafnaði kr. 2.000.000 en ekki eru veittir lægri styrkir en kr. 300.000.
- Veittir
eru styrkir til gerðar viðskiptaáætlunar (300.000), áætlanagerðar,
þróunarkostnaðar og markaðssetningar - sjá nánar í umsóknareyðublaði.
- Liggi
viðskiptaáætlun fyrir og og viðskiptahugmyndin sé trúverðug er hægt er
að sækja um styrk til að hrinda hugmynd í framkvæmd (launastyrkur fyrir
viðkomandi styrkþega) Styrk má greiða í áföngum gegn skilum
áfangaskýrslu.
- Ekki eru veittir styrkir til stærri fjárfestinga né rekstrarstyrkir.
- Vakin
er athygli á því að styrkir eru skattskyldir og þarf að telja fram
kostnað á móti. Kostnaður skal vera helmingi hærri en styrkupphæð
nemur.
http://www.atvinnumalkvenna.is/forsida/