Fréttir

9.2.2009

Upplýsingafundur Norrænu Menningargáttarinnar í Norræna húsinu, mánudaginn 16. febrúar kl. 13.

Kynntu þér styrkjaáætlun Norrænu Ráðherranefndarinnar fyrir menningu og listir.

Ert þú listamaður eða vinnur þú á annan hátt að menningu og listum?
Viltu fá alþjóðlegan vinkil á verkefnin þín?
Viltu mynda ný tengsl?
Ertu með áhugavert verkefni?


Ef þú svarar þessum spurningum játandi mun menningaráætlun Norrænu ráðherranefndarinnar líklega vekja áhuga þinn.

Því viljum við bjóða þér á kynningarfund Norrænu menningargáttarinnar í Norræna húsinu. Bergljót Jónsdóttir forstjóri segir frá þeim möguleikum sem Norræna styrkjaáætlunin býður upp á og gefur góð ráð til umsækjenda.

Eftir stutta kynningu verður gerð grein fyrir verkefni sem Menningargáttin hefur styrkt.
Síðan fara fram pallborðsumræður með; Ágústi Guðmundsyni, Bergljótu Jónsdóttur, Hávari Sigurjónssyni, Ragnheiði Tryggvadóttur, Signýju Ormarsdóttur og Þuríði Helgu Kristjánsdóttur.

Tími og staðsetning: Mánudaginn 16. febrúar 2009, kl. 13:00
Norræna húsið, Sturlugötu 5, 101 Reykjavík


Fundurinn fer fram á íslensku og ensku.

Ef þú hefur einhverjar spurningar skaltu hafa samband við info@kknord.org  eða thuridur@nordice.is  
Vinsamlegast tilkynnið þáttöku á thuridur@nordice.is  fyrir 14.2.2009
















Yfirlit



eldri fréttir