Fréttir

11.5.2020

Sjálfbær þróun kaupmannsins á horninu, stafrænar flíkur og vatnavellíðan meðal styrkþega Hönnunarsjóðs




Hönnunarsjóður úthlutaði í dag, 11. maí, 26 styrkjum til ólíkra verkefna á vegum hönnunar og arkitektúrs. Að þessu sinni voru 25 milljónum úthlutað en alls bárust 126 umsóknir um 237 milljónir. 


Um metfjölda umsókna var að ræða í þessari úthlutun Hönnunarsjóðs og ljóst að ástandið í kjölfar Covid-19 faraldursins hafði áhrif á fjölda umsókna og virðist líka hafa haft áhrif á verkefnin sem sóttu um. Nýsköpun í kjölfar faraldurs og breyttri heimsmynd sem blasir við svo sem áhersla á stafrænar lausnir, sjálfbærni og matarsóun eru meðal verkefna sem hljóta styrki.  


Í ljósi aðstæðna var ekki hægt að hafa úthlutun í tengslum við Ársfund Hönnunarmiðstöðvar með tilheyrandi mannfögnuði eins og tíðkast hefur. Í staðinn teiknaði Rán Flygenring þessa lýsandi mynd af styrkafhendingunni sem ekki fór fram, styrkþegum, Þórdísi Kolbrúnu R. Gylfadóttur ráðherra og Birnu Bragadóttur formanni stjórnar Hönnunarsjóðs. 

 

MAT. Sjálfbær þróun kaupmannsins á horninu verkefni MStudio hlaut hæsta styrkinn að þessu sinni, verkefnastyrk sem hljóðar upp á 3 milljónir króna. Um er að ráð heildstætt dreifihagkerfi fyrir matvæli sem hannað er í þeim tilgangi að lágmarka óþarfa dreifingu matvæla, bæta lífsgæði og minnka sóun. 

 

Spaksmannsspjarir, fatamerki Bjargar Ingadóttur hlaut næst hæsta styrkinn, 2 milljónir króna fyrir útfærslu á stafrænum flíkum í stafrænni verslun. 

 

Mikill fjöldi umsókna í Hönnunarsjóð endurspeglar þörfina fyrir fjárfestingu í   hönnunardrifnum verkefnum. Nú, sem aldrei fyrr, þarf að leita nýrra leiða, efla hönnunardrifna nýsköpun og ýta undir þróun atvinnulífs skapandi greina, með áherslu á jafnvægi milli umhverfis, lífsgæða, mannlífs og verðmætasköpunar.“

Birna Bragadóttir, formaður stjórnar Hönnunarsjóðs

Stjórn tók ákvörðun um að veita enga ferðastyrki í ljósi aðstæðna og óvissu í kjölfar heimsfaraldurs. Umsækjendur ferðastyrkja eru hvattir til að sækja aftur um í haust. 

 

Við minnum á að opið er fyrir umsóknir í aukaúthlutun Hönnunarsjóðs, átaksverkefni stjórnvalda í kjölfarið á Covid-19 faraldrinum og hvetjum hönnuði, arkitekta og fyrirtæki sem byggja starfsemi sína á hönnun til að sækja um. Umsóknarfrestur rennur út 18. maí næstkomandi og stefnt er að úthlutun 29. maí. Hægt er að nálgast allar upplýsingar og umsóknir á heimasíðu Hönnunarsjóðs hér.

Listi yfir styrkþega

 

Verkefnastyrkir

 

MAT. Sjálfbær þróun kaupmannsins á horninu hlaut 3.000.000 kr.

MAT er heildstætt dreifikerfi fyrir matvæli sem er hannað í þeim tilgangi að lágmarka óþarfa dreifingu matvæla, bæta lífsgæði fólks og minnka sóun.                                                                 

 

Spaksmannsspjarir, Stafrænar flíkur í stafrænni vefsölu hlaut 2.000.000 kr. 

Verkefnið er að búa til stafrænt stærðakerfi Spaksmannsspjara út frá líkamsmælingum á þrem milljón manns og í kjölfarið bjóða stafrænt hannaða fatalínu, þá fyrstu hér á landi, í vefverslun Spaksmannsspjara.                         

 

 

Ný vörulína Flothettu fyrir flot- og vatnsmeðferðir hlaut 1.000.000 kr. 

Nýjar hannaðar flotstuðningsvörur munu nýtast í flotslökun og líkamsmiðaða vatnsmeðferðarvinnu. Vörulínan er unnin af Unni Valdísi Kristjánsdóttir vöruhönnuði og Höllu Hákonardóttur fatahönnuði.

 

Verkefnið Ferill og störf Kristínar Þorkelsdóttur hlaut 1.000.000 kr. 

Bryndís Björgvinsdóttir, rýnir, tekur saman og miðlar verkum, ferli, reynslu og áhrifum  hönnuðarins Kristínar Þorkelsdóttur, sem er m.a. hönnuður íslensku peningaseðlana, íslenska vegabréfsins og ýmissa rótgróinna merkja.      

 

Hringrásarvæn hönnun, FÓLK Reykjavík hlaut 1.000.000 kr. 

Hringrásarvæn hönnun gengur út á að hanna og þróa vörulínu fyrir heimili og vinnustaði úr íslensku endurunnu- og afgangshráefni. Verkefnið stuðlar að nýsköpun í vöruhönnun, auknu framboði af íslenskum hönnunarvörum og eflir hringrásarhagkerfi á Íslandi.                     

 

SAFE seat, Fjaðrandi bátasæti  hlaut 1.000.000 kr.          

Hönnun fjaðrandi bátasæta, kemur í veg fyrir meiðsl áhafna og farþega í bátsferðum. Lögð er áhersla á harðbotna slöngubáta (e. RIB) en lausnin getur einnig hentað vel í öðru samhengi. Hryggmeiðsl í hraðbátum eru algeng, oft alvarleg en líka óþörf.            

 

Bioplastic Skin, Valdís Steinarsdóttir hlaut  1.000.000 kr. 

Verkefnið Bioplastic Skin felst í því að hanna umhverfisvænar umbúðir úr dýrahúðum sem nota má til að pakka kjötvörum. Nú til dags er stórum hluta dýraskrokka fargað ónýttum eftir slátrun og þar með er dýrmætu hráefni eins og dýrahúðum sóað.                                

 

Fjölnota umhverfisvænir Warriör íþróttagalla, Ýr Þrastardóttir hlaut 1.000.000 kr. 

Vöruþróun, kynning og markaðsherferð á fatamerkinu Warriör sem er sportfatnaður fyrir bæði kyn og önnur kyn eða engin kyn. Stefna Warriör er að fjölbreyttir menningarkimar mætist. Hönnunin hefur engin landamæri og vill sameina fólk með ólíkan uppruna, úr ólíkum menningarkimum og stéttum.                     

 

The big picture of Climate Change, Gagarín hlaut 1.000.000 kr. 

Verkefnið felur í sér rannsókn, hönnun, tilraunir, þróun vísindalegrar frásagnar og miðlunar tölfræði í raun og sýndarheimi sem snýr að loftslagsbreytingum. 

 

Ný gömul hverfi, Jakob Jakobsson hlaut 850.000 kr. 

"Ný gömul hverfi" er rannsóknarverkefni þar sem skoðuð eru gömul og gróin hverfi borgarinnar með áherslu á varðveislu allra bygginga og hárfína aukningu byggingamagns og þar af leiðandi íbúafjölda. Framleiddar verða handteikningar, Axonómetríur í stóru formati.                      

 

 

Signatúra Books, Júlía Runólfsdóttir hlaut 850.000 kr. 

Signatúra Books er sjálfstæður útgefandi, stúdíó og rafræn bókabúð sem vinnur með hönnuðum, listamönnum og rithöfundum að útgáfu bóka, verka og hluta í takmörkuðu upplagi. Signatúra, sem var stofnuð í lok árs 2019, leggur sérstaka áherslu á umhverfisvænar prentaðferðir og góða bókahönnun.   

    

Torg í endurspeglun, Arnar Ingi Viðarsson hlaut 800.000 kr.       

Torg í endurspeglun er samstarfsverkefni Arnars Inga og Valdísar Steinarsdóttir. Innsetningarverkið þjónar hlutverki almenns áningarstaðar sem og sem auðgar sjónmenningu miðbæjar Reykjavíkur, sama hvar það er sett upp.

                                                            

Fields, Litten Nystrøm hlaut 800.000 kr. 

Verkefnið felur í sér þróun, hönnun og framleiðslu golfmotta og rýnir hugmyndir um ræktun og uppskeru. Leikið er með ull og náttúrulega liti, stærðir og möguleika til að skapa stærri hreyfanlega form.                           

 

Umskipti, Hanna Dís Whitehead hlaut 750.000 kr.              

Í verkefninu Umskipti er leitast við leyfa mynstrum að mótast í nytjahluti. Hvert mynstur leyfir margar mismunandi útfærslur eftir því hversu mikið af því er notað og hvernig því er raðað saman. Mynstrið fer úr því að vera bara skraut á yfirborði í að móta notagildið sjálft. Því hættir það að vera ónauðsynlegt og verður að hlut í sjálfum sér.                           

 

Reykjavík barnanna, Linda Ólafsdóttir hlaut 750.000 kr. 

Reykjavík barnanna verður ríkulega myndlýst og fallega hönnuð bók um höfuðborgina frá landnámi til dagsins í dag. Á 100 blaðsíðum verður sýnt hvernig bærinn varð að kaupstað og miðstöð atvinnu- og menningarlífs Íslendinga, helstu götur, byggingar og mannlíf lifna við á síðum bókarinnar.                        

 

Skarphéðinn Jóhannsson, þroskasaga arkitekts og þjóðar 1934-1970, Halldóra Arnardóttir hlaut 750.000 kr. 

Byggingar Skarphéðins Jóhannssonar voru liður í nútímavæðingu landsins um miðbik síðustu aldar. Með því að rýna verk hans kynnumst við gildi arkitektúrs og getu til að móta líf einstaklingsins og samfélagsins í heild. Efniviður bygginga og orða lögðu hvort um sig stoðir að heilbrigðara umhverfi.                                                                  

                           

The Non Flowers Book, Thomas Pausz hlaut 500.000 kr. 

„The Non Flowers“ verkefni Thomas Pausz var sýnt á Íslandi og í The Victoria & Albert Museum 2019. Styrkurinn er veittur til að hanna bók um ferlið, en bókin verður hluti af „Villiblómið“, haustsýningu Hafnarborgar 2020.

 

Gosbrunnagarður, Sigurrós Guðbjörg Björnsdóttir hlaut 250.000 kr. 

Samstarfsverkefni Árna Jónssonar og Sigurrósar G. Björnsdóttur sem hefur verið boðin vinnustofudvöl í Gunnfríðargryfju 7. ágúst til 2. september 2020. Þar verða unnir gosbrunnar sem smám saman munu mynda gosbrunnagarð utandyra í garðinum við Ásmundarsal.                              

 

Rannsóknar- og þróunarstyrkir                                                           

 

Dórófónn til LHÍ, Halldór Úlfarsson hlaut 1,200,000 kr.

Dórófónn er nýtt raf-akústískt, strengjahljóðfæri. Sótt er um styrk til þess að framleiða dórófón sem verður gefinn Tónlistardeild LHÍ til notkunar við kennslu. Um leið verður gert samkomulag um notendarannsókn til lengri tíma með nemendum og kennurum deildarinnar til að styðja við frekari þróun á hljóðfærinu.                         

 

Iða, Þórunn Árnadóttir hlaut 1,000,000 kr.

Með því að kryfja og skoða eiginleika kerta til hlítar hef ég komist að því að kertin geta gert svo miklu meira en að sitja í kertastjaka. Þau geta dansað! Hugmyndin er að hanna hlut sem er einskonar samruni óróa og kertastjaka. Kertin nýta sína eigin orku til að hreyfast í hringi.   

 

Beauty & the Beast, Anna Diljá Sigurðardóttir hlaut 1,000,000 kr.

Verkefnið felst í rannsókn á sögu, upplifun og framtíð lúpínu í íslensku landslagi. Rakin er ferð lúpínunnar frá hitabeltinu til kaldari svæða, Íslands og hvernig hún berst við að taka yfir landsvæði í nýjum heimkynnum.

                                                 

Carnal Appetite, Elín-Margot Ármannsdóttir hlaut 750.000 kr.

Matur er nátengdur kynörvun. Hættu að borða og þú munt missa kynferðislega örvun. Aftur á móti skaltu skoða erótískar eða gastronomic myndir og líkaminn mun sýna merki um spennu. „Carnal Appetite“ snýst um að skapa kynferðislega valdeflingu með borðbúnaði.                                         

 

Blæbrigði tóngerjunnar, Sveinn Steinar Benediktsson hlaut 700.000 kr. 

Í verkefninu er skapað samtal um umhverfisáhrif mannsins hvað varðar hljóð og hljóðmengun. Lífferlar örvera rannsakaðir og  áhrif hljóðbylgja á framleiðsluferli bjórs með von um blæbrigði í bragði og nýjum möguleikum.                                                                                        

 

Fjörunytjar í textíl, Tanja Huld Leví Guðmundsdóttir hlaut 500.000 kr. 

Ísland er umlukið hafi og sjávargróðri. Rannsókn sem miðar að því að þróa staðbundinn, sjálfbæran og niðurbrjótanlegan textíl úr fjörunytjum.                                

 

Markaðs- og útflutningsstyrkir                                                                

 

Ilmbanki íslenskra jurta og tengdar vörur, Nordic Angan hlaut 1.000.000 kr. 

Stefnumótun og markaðsátak fyrir sýninguna Ilmbanka íslenskra jurta og ilmtengdar afurðir Nordic Angan á innlendum markaði ásamt vefsölu á afmörkuðum erlendum mörkuðum.                     

 

Stafræn Sýning SS21, Arnar Már Jónsson hlaut 750.000 kr. 

Myndataka og stafræn sýning á SS21 línu Arnar Márs Jónssonar. Ný leið til að kynna fatalínu sem byggð hefur verið upp í gegnum vídeóverk. Markaðsstarf til að vinna að sölu í helstu tískuverslunum heims.

















Yfirlit



eldri fréttir