Fréttir

16.4.2020

Gagarín hlýtur tilnefningu til European Design Awards 2020




Gagarín hlýtur tilnefningu til European Design Awards 2020 fyrir gagnvirkt sýningaratriði, stafrænan vefstól, fyrir fornleifa og sögusafnið Pointe-à-Callière í Montreal, Kanada.

Á síðasta ári hannaði Gagarín gagnvirkt sýningaratriði fyrir fornleifa og sögusafnið Pointe-à-Callière í Montreal, Kanada. Frá forsögu til samtímans býður safnið almenningi að kanna töfrandi heim Perú í gegnum siðmenningu Inka. Menning Inkanna hefur ætíð verið sveipuð ákveðinni dulúð en Inkar eru þó einna þekktastir fyrir ótrúlega hönnun og gæðaefni í vefnaði. Í því ljósi hannaði Gagarín stafrænan vefstól sem færir gestinn nær þessu magnaða handverki Inkanna á skapandi hátt.


Mynstrin sem voru útfærð fyrir þetta sýningaratriði sem kallast Weaving Time eiga öll stoð í aldagamalli hefð Inkanna en eru nú útfærð á nútímalegan hátt. Gestir velja mynstur, raða þeim saman og vefa í sameiningu óendalega langan refil eða teppi sem fléttast um sýningarrýmið. Gestirnir verða þannig meðhöfundar þessarar síbreytilegu sýningar. Nánari upplýsingar má finna á heimasíðu Gagarín hér.


Menning Inkanna hefur ætíð verið sveipað ákveðinni dulúð en Inkar eru þó einna þekktastir fyrir ótrúlega hönnun og gæðaefni í vefnaði.

Inkar
Inkar kölluðust frumbyggjar á meginlandi Suður-Ameríku. Þeir bjuggu í Inkaríkinu sem var stofnað um 1200 sem smáríki í kringum höfuðborgina Cuzco. Seinna teygði það sig langt norður og suður eftir Andes-fjöllunum og náði hámarki sínu á 15.öld.


European Design Awards

European Design Awards eru samstarfsverkefni evrópskra hönnunartímarita, sem öll eru leiðandi á sínu sviði. Meira um þau hér.


















Yfirlit



eldri fréttir