15.3.2019

Tilnefningar til FÍT-verðlaunanna 2019




Til­kynnt hef­ur verið um til­nefn­ing­ar til FÍT-verðlaun­anna 2019 sem eru veitt af Fé­lagi íslenskra teikn­ara. Innsend verk í keppnina hafa aldrei verið fleiri eða 370 talsins. Það er því ljóst að mikil gróska og kraftur er í faginu.

Til­nefnt er í 21 flokki og ná þeir yfir helstu und­ir­flokka graf­ískr­ar hönn­un­ar. Má þar nefna skjágrafík, vef­hönn­un, prent­verk, hönn­un aug­lýs­inga og myndlýsingar. Að auki eru veitt sérstök verðlaun til þess verks sem þótti skara fram úr á meðal allra verðlaunaðra verka. Þessi verðlaun eru valin af for­mönn­um dóm­nefndanna, en formenn dómnefnda í ár voru Arnar Ólafsson (skjáhönnun), Atli Hilmarsson (mörkun), Hildur Siguðardóttir (prent) og Hjörvar Harðarsson (auglýsingar).

Hægt er skoða öll tilnefnd verk hér.

Verðlaun­in verða af­hent miðviku­dag­inn 27. mars nk. í Tjarn­ar­bíói klukk­an 18:30.

Félag íslenskra teiknara stendur fyrir veglegri samsýningu á HönnunarMars sem sýnd verður í porti Listasafns Reykjavíkur– Hafnarhúsi, þriðja árið í röð. Viðburðurinn mark­ar upp­haf Hönn­un­ar­Mars sem verður hald­inn 28. til 31. Mars.

Um FÍT
Félag íslenskra teiknara er félagsskapur grafískra hönnuða og myndhöfunda á Íslandi. Aðalmarkmið FÍT er að efla starfsstéttina, kynna hana út á við og auka samstöðu félagsmanna. Formaður FÍT er Kristín Eva Ólafsdóttir en hún er fyrsti kvenkyns formaður félagsins frá stofnun 1953.