10.1.2018

Samkeppni um nýtt útilistaverk á vegg Sjávarútvegshússins



Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytið efnir til opinnar samkeppni um gerð útilistaverks á austurgafl Sjávarútvegshússins við Skúlagötu 4.

Uppfært 22. janúar: Frestur til að senda inn tillögu í samkeppni um nýtt útilistaverk á austurgafl Sjávarútvegshússins Skúlagötu 4 hefur verið framlengdur til kl. 16:00 fimmtudaginn 1. febrúar.

Verkið skal hafa skírskotun í sögu sjávarútvegs á Íslandi. Höfundum er frjálst að velja þá efnisútfærslu sem þeir telja henta hugmynd sinni best, en verkið skal hafa endingu í að minnsta kosti þrjú ár. Mikilvægt er að verkið taki tillit til umhverfisins, falli vel að svæðinu og þoli íslenska veðráttu.

Um samkeppnina gilda samkeppnisreglur Sambands íslenskra myndlistarmanna (SÍM). Þátttaka í samkeppninni er opin öllum skapandi einstaklingum og hópum.

Dómnefnd skipuð fulltrúum Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytisins og SÍM mun velja eina af tillögunum sem berast til útfærslu.

Vinningstillagan mun hljóta kr. 250.000,- í verðlaun. Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytið mun standa straum af kostnaði við gerð og uppfærslu verksins að hámarki kr. 2.000.000,-.

  • Tillögum skal skilað inn fyrir kl.16:00 fimmtudaginn 1. febrúar 2018.
  • Niðurstaða dómnefndar verður kynnt í síðasta lagi 23. febrúar 2018 og sýning á tillögum sem bárust í keppnina haldin að því loknu á vef Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytisins.

Keppnislýsingu og nánari upplýsingar um umsóknarferlið má finna á heimasíðu Atvinnuvegar- og nýsköpunarráðuneytisins.