9.9.2016

Samkeppnisúrslit | Aðkomutákn fyrir Garðabæ



Nýtt aðkomutákn Garðabæjar, sem valið var eftir samkeppni á meðal hönnuða og myndlistarmanna, er fléttað saman úr þremur jafnstórum flötum römmum í þrívítt verk. Verkinu er ætlað að marka aðkomu að bænum og það svæði sem honum tilheyrir.

Vinningstillagan kom frá Teiknistofunni Tröð og var unnin af Sigríði Magnúsdóttur arkitekt FAÍ, Hans-Olav Andersen arkitekt FAÍ, Magnúsi Andersen ljósmyndara og Nínu Solveigu Andersen.

Í rökstuðningi dómnefndar segir m.a. „Í verkinu felast margræðar skírskotanir til samfélags fólks og náttúru þar sem einfalt form er sett saman á listrænan hátt svo það myndar flókið samspil. Verkið getur vísað til ólíkra sjónarhorna og það rammar inn síbreytilega náttúru innan bæjarfélags sem er í sókn og vexti. Auðkennismarkið er óvænt og djörf útfærsla sem getur dregið til sín athygli og sómt sér vel í landslagi.“


Verðlaunin voru afhent á Garðatorgi laugardaginn 3. september á hátíðahöldum í tilefni afmælisins. Í verðlaun voru 2 milljónir króna.

Í texta sem fylgdi vinningstillögunni segir að aðkomutáknið geti verið ákjósanlegur áningastaður fyrir hjólandi og gangandi vegfarendur þar sem setjast megi á neðsta hluta rammans og þeir sem hafa gaman að klifri geti spreytt sig. Einnig kemur fram að aðkomutákninu sé tyllt á þrjár undirstöður og að leitast sé við að raska landinu umhverfis eins lítið og kostur er.

Hægt er að útfæra táknið úr mismunandi efnum og í ólíkum stærðum eftir því hvað hentar á hverjum stað.

Samkeppnin sem efnt var til í vor var haldin í samstarfi við Hönnunarmiðstöð Íslands. Samkeppnin var opin hönnuðum og listamönnum og var haldin í tilefni af 40 ára afmæli Garðabæjar sem kaupstaðar sem fagnað er á þessu ári. Leitað var að tákni fyrir bæinn sem er ætlað að marka bæjarmörk en einnig kom fram að þema þess verði nýtt á margvíslegan hátt eins og við gerð listmuna, bréfsefnis, vefsíðu o.s.frv.

Verðlaunin voru afhent á Garðatorgi laugardaginn 3. september á hátíðahöldum í tilefni afmælisins. Í verðlaun voru 2 milljónir króna.

Í Hönnunarsafni Íslands stendur yfir sýning á þeim 14 tillögum sem bárust í keppnina og verður hún opin til 16. október næstkomandi. Nánar hér.


Dómnefnd skipuðu:
Sigríður Hulda Jónsdóttir, forseti bæjarstjórnar Garðabæjar og formaður dómnefndar
Harpa Þórsdóttir, forstöðumaður Hönnunarsafns Íslands
Hildigunnur Gunnarsdóttir, grafískur hönnuður FÍT
Hringur Hafsteinsson, listrænn stjórnandi Gagarín
Michael Blikdal Erichsen, arkitekt hjá T.ark



Sigurvegarar úr samkeppninni, ásamt dómnefnd og framkvæmdarstjóra Hönnunarmiðstöðvar Íslands.