29.6.2016

Hönnunarsamkeppni um nýbyggingu fyrir Alþingi



Framkvæmdasýsla ríkisins, fyrir hönd Alþingis býður til opinnar hönnunarsamkeppni (framkvæmdasamkeppni) um nýja byggingu fyrir Alþingi á Alþingisreit.

Um er að ræða um 4.500 m² byggingu, auk um 1.200 m² bílakjallara. Byggingin mun hýsa starfsemi Alþingis, þ.e. aðra starfsemi en þá sem er og verður í Alþingishúsinu, Skála og öðrum byggingum við Kirkjustræti sem tilheyra Alþingi. Aðallega er um að ræða aðstöðu fyrir þingmenn og þingflokka og nefndastörf, auk rekstrar- og þjónustusviðs.

Tvö fyrirspurnartímabil eru í samkeppninni og lýkur því fyrra 15. ágúst 2016 en því síðara 22. september 2016.
Skilafrestur tillagna er 25. október  2016, fyrir kl. 15:00 hjá Ríkiskaupum.

Veitt verða  verðlaun að heildarfjárhæð 14 milljónir kr. þar af verða fyrstu verðlaun 7 m.kr.

Gert er ráð fyrir að útboðsgögn verði tilbúin á vormánuðum 2017 og að vígsla byggingarinnar gæti orðið um áramót 2019/20.

Samkeppnin fer fram í samvinnu við Arkitektafélag Íslands og er auglýst á EES.


Tillaga Guðjóns „heitins“ Samúelssonar, arkitekts, sem teiknaði Alþingishúsið.

Nánari upplýsingar er að finna í samkeppnislýsingu sem aðgengileg er á vef Ríkiskaupa, útboðsnúmer 20352. Til að nálgast ítargögn verður að skrá sig til þátttöku á vef Ríkiskaupa en gögn verða einnig fáanleg á minniskubbi, gegn framvísun staðfestingar á þátttöku og  3.500,- kr. greiðslu, hjá Ríkiskaupum. Skrifstofa Ríkiskaupa er opin virka daga frá kl. 9:00 – 15:00.

Samkeppnislýsing – Alþingi nýbygging