5.1.2016

Samkeppni um einkennismerki Grafíu



Grafía, stéttarfélag í prent- og miðlunargreinum, í samstarfi við Hönnunarmiðstöð Íslands efnir til samkeppni um einkennismerki fyrir félagið.

Félagið stendur nú á tímamótum þar sem nafninu var breytt nýverið úr Félagi bókagerðarmanna í Grafíu. Nafnabreyting félagsins kallar á nýtt merki. Samkeppnin er öllum opin en veitt verða ein verðlaun að upphæð 750.000 kr. fyrir bestu tillöguna. Samið verður sérstaklega við vinningshafa um frekari útfærslu.

Skilafrestur tillagna er til kl. 13.00, fimmtudaginn 14. janúar 2016.

Merkið

Merkið þarf að vera sterkt, endurspegla hlutverk félagsins eða hafa skírskotun í ólík starfssvið félagsmanna. Merkið verður notað á margvíslegan hátt í kynningarefni, prentað og rafrænt.

Smelltu hér til að fara á heimasíðu félagsins og sjá gamla merkið.

Verðlaunafé

Veitt verða ein verðlaun að upphæð 750.000 kr. fyrir bestu tillöguna.

Umsóknarferli

Tillögum skal skila í lokuðu umslagi merktu dulnefni í Hönnunarmiðstöð Íslands, Vonarstræti 4b, 101 Reykjavík, fyrir kl. 13, fimmtudaginn 14. janúar 2016. Í umslaginu skal vera annað lokað umslag merkt dulnefni en inni í því þarf rétt nafn hönnuðar, heimilisfang og sími að koma fram.

Tillögum skal skila útprentuðum á A4 blaði í lit (hámark 2 síður). Tillögur (pdf) skulu einnig fylgja með rafrænt. Úrslit samkeppninar verða tilkynnt á degi prentiðnaðarins í IÐUNNI föstudaginn 5. febrúar 2016. Ekki verður hægt að tryggja að keppendur fái tillögur sínar afhentar að keppni lokinni.

Dómnefnd

Halldór Þorsteinsson, grafískur hönnuður, tilnefndur af Grafíu
George Kristófer Young, prentsmiður, tilnefndur af Grafíu
Agga Jónsdóttir, grafískur hönnuður, tilnefnd af Hönnunarmiðstöð.
Einar Geir Ingvarsson, grafískur hönnuður, tilefndur af Hönnunarmiðstöð.
Edda V. Sigurðardóttir, grafískur hönnuður, tilnefnd af Hönnunarmiðstöð.

Dómnefnd áskilur sér rétt til að hafna öllum tillögum.

Keppnisritari

Ritari keppninnar er Haukur Már Hauksson, grafískur hönnuður. Fyrirspurnir þurfa að berast fyrir miðnætti fimmtudaginn 29. október 2015 á veffangið samkeppni@honnunarmidstod.is. Öllum spurningum verður svarað og svörin birt á heimasíðu Hönnunarmiðstöðvar þann 3. nóvember 2015.

Uppfært: Smelltu hér til að sjá svör við þeim spurningum sem barst.

Um Grafíu

Nafn félagsins: Grafía - stéttarfélag í prent- og miðlunargreinum. Starfssvið félagsins er nokkuð vítt og fjölbreytt en aðal starfsemin er gerð kjarasamninga, hagsmunagæsla félagsmanna gagnvart atvinnurekendum og stjórnvöldum auk þjónustu við félagsmenn svo sem réttindi í sjúkrasjóði, endurmenntun, námsstyrki og útleigu orlofshúsa.

Orðið grafía er sótt í forngrísku og dregið af sagnorðinu gráphō („ég skrifa“). Það er náskylt orðum sem löngu eru orðin Íslendingum töm og tengjast starfssviði félagsins: Grafík, grafískur hönnuður, grafíklist, og svo auðvitað Grafíska sveinafélagið. Þannig tengist nafnið starfssviðinu á traustan og auðskilinn hátt.

Orðið er auðvelt að bera fram og beygja;

Grafía
um Grafíu
frá Grafíu
til Grafíu.

Það er léttleiki yfir nafninu, en jafnframt er nokkur virðuleiki yfir gríska upprunanum. Undirtitillinn, „stéttarfélag í prent- og miðlunargreinum“, tekur af allan vafa um á hvaða sviði félagið starfar. Sem er auðskiljanlegt gagnvart almenningi og í opinberum skjölum, þó í daglegu tali félagsmanna og þeirra sem félagið þarf að hafa samskipti við, muni „Grafía“ duga, og allir vita við hvað er átt.

Í dag er Grafía aðili að Nordisk Grafisk Union, UNI Graphical & Packaging og UNI Europa Graphical & Packaging, en grafíski iðnaðurinn er aðili að stórum alþjóðasamtökum UNI Global Union sem hafa innanborðs um 15 milljónir félagsmanna úr mörgum greinum.