29.4.2015

Samkeppni | Einkenni HönnunarMars 2016



Kallað er eftir umsóknum hönnuða eða hönnunarteyma sem hafa áhuga á að útfæra einkenni HönnunarMars 2016. Úr umsóknum verða valdir þrír hönnuðir eða teymi til að taka þátt í lokaðri samkeppni um einkennið. Sérstaklega er hvatt til þverfaglegrar samvinnu hönnuða. Sækja þarf um þátttöku fyrir kl. 12 á miðnætti mánudaginn 4. maí 2015.


HönnunarMars er stærsta sameiginlega verkefni íslenskra hönnuða ár hvert og um leið stærsta innlenda og alþjóðlega kynningarverkefni Hönnunarmiðstöðvar. Næsti HönnunarMars, sá 8. í röðinni, verður haldinn dagana 10. - 13. mars 2016. Fyrir HönnunarMars 2013 var í fyrsta sinn haldin samkeppni um einkenni hátíðarinnar og verður sami háttur hafður á fyrir HönnunarMars 2016.

Einkenni HönnunarMars getur verið grafík, teikning, ljósmynd eða í raun hvaða myndheimur sem er. Skilyrðið er að hann sér einkennandi, skýr, og henti til kynningar á stórri hátíð sem þessari.


Valið á Einnkenni HönnunarMars 2014 fer þannig fram:

1. skref – Umsókn um þátttöku í lokaðri samkeppni

Hönnuðir eða hönnunarteymi lýsa áhuga sínum á að fá að taka þátt í lokaðri samkeppni um einkenni HönnunarMars 2016. Umsækjendur senda ferilsskrá og stutta skriflega lýsingu á því, hvers vegna viðkomandi vill/vilja taka þátt í verkefninu. Mikilvægt er að eitt netfang og símanúmer fylgi umsókninni. Undirstrikað skal, að í þessu skrefi er ekki verið að biðja um hugmyndir að einkenni eða kynningarefni fyrir hátíðina. Umsóknir skulu berast fyrir miðnætti mánudaginn 4. maí 2015 á netfangið samkeppni@honnunarmidstod.is.

2. skref – Lokuð hugmyndasamkeppni

Úr innsendum umsóknum verða valdir þrír hönnuðir eða teymi til að vinna hugmyndir að einkenninu. Hver hópur fær greiddar 70.000 kr. fyrir innsendar tillögur. Hönnunarmiðstöð greiðir þar að auki 300.000 kr. fyrir tillöguna sem valin verður til notkunnar. (Upphæðirnar innihalda vsk.)

3. skref – Útfærsla einkennis og kynningarefnis

Í kjölfar samkeppnarinnar verða valdir grafískir hönnuðir til að útbúa kynningarefni HönnunarMars í heild með hliðsjón af því einkenni sem þá hefur verið valið. Hér skal tekið fram að hafi hönnuður eða teymi áhuga á að vinna kynningarefnið í heild, má nefna það í innsendri umsókn í 1. skrefi.

Helstu dagssetningar:

15. apríl | Opnað fyrir umsóknir um þátttöku.
4. maí  | Áhugasamir skila inn umsóknum um þátttöku, sjá 1. skref.
8. maí kl. 14:00 | Fundur með völdum þátttakendum um verkefnið, sjá 2.
9. júní kl. 12:00 á hádegi | Lokaskil á tillögum.


Stjórn og verkefnastjóri HönnunarMars 2016 velja bæði hópana úr innsendum umsóknum (1. skref) sem og tillöguna til notkunnar. Stjórnin áskilur sér rétt til að hafna öllum tillögum.

Fyrirspurnir þurfa að berast í síðasta lagi mánudaginn 27. apríl á netfangið samkeppni@honnunarmidstod.is.

Öllum spurningum verður svarað og verða svörin birt á heimasíðu Hönnunarmiðstöðvar www.honnunarmidstod.is fimmtudaginn 30. apríl 2015.

Umsóknir um þátttöku sendist á samkeppni@honnunarmidstod.is fyrir miðnætti mánudaginn 4. maí.