26.1.2012

Hönnunarsamkeppni | Umbúðahönnun 2012




Prentsmiðjan Oddi og Félag Íslenskra Teiknara (FÍT) standa að opinni hönnunarsamkeppni umbúða úr kartoni og/eða bylgjupappír.

Keppnin er öllum opin og án endurgjalds. Tillögurnar skulu, að hluta eða að öllu leiti, miða við það hráefni sem keppnishaldarar leggja til, en þáttakendum er frjálst að velja sér viðfangsefni.

Beiðni um keppnisgögn skal senda á netfangið keppni@oddi.is þar sem fram kemur nafn eða nöfn þáttakenda, netföng og símanúmer. Frjálst er að senda fleiri en eina tillögu í keppnina.

Lokaskil á tillögum er 23. febrúar og skal þeim skilað á rafrænu formi á netfangið keppni@oddi.is fyrir miðnætti þann dag.

Úrslitakvöld verður haldið þann 1. mars. Allar tillögur sem berast dómnefnd verða númeraðar með sérstöku raðnúmeri og er því full nafnleynd á öllu því sem dómnefnd sér. Allar innsendingar verða skoðaðar með framleiðslumöguleika í huga og verður samið sérstaklega við höfund ef til framleiðslu kemur.

Dómnefnd skipa:
  • Heiðar Þór Jónsson - Grafískur hönnuður / Varaformaður FÍT
  • Elísabet Ýr Sigurðardóttir - Umbúðahönnuður hjá Odda
  • Sindri Páll Sigurðsson - Vöruhönnuður hjá Össuri
  • Birna Geirfinnsdóttir - Grafískur hönnuður
  • Stefán Pétur Sólveigarson - Vöruhönnuður

1. verðlaun

150.000 kr í peningum og 250.000 kr í prentinneign hjá Odda

2. verðlaun
75.000 kr í peningum og 150.000 kr í prentinneign hjá Odda

3. verðlaun

35.000 kr í peningum og 100.000 kr í prentinneign hjá Odda

Út fyrir boxið – Aukaverðlaun
150.000 kr í prentinneign hjá Odda verður veitt þeirri tillögu sem sýnir fram á framsækna eða nýja nálgun á notkun umbúða.

www.oddi.is
www.teiknarar.is