1.2.2012

Hugmyndasamkeppni | Umhverfi Norræna hússins


Idékonkurrence


Miðgarður Reykjavík | Hugmyndasamkeppni í miðborg Reykjavíkur


Norræna húsið í samvinnu við Félag íslenskra Landslagsarkitekta og Hönnunarmiðstöð Íslands, efna til hugmyndasamkeppni um hönnun á svæði sem umlykur Norræna húsið.

Samkeppnin er hugmyndasamkeppni og er opin landslagsarkitektum og öðrum fagaðilum og hönnuðum sem skráðir eru í fagfélög innan Hönnunarmiðstöðvar Íslands auk sambærilegra fagaðila á Norðurlöndum.

Veitt verða verðlaun að heildarfjárhæð allt að kr. 2.000.000.-

Markmið keppninnar er að fá raunhæfar og spennandi tillögur um hönnun og innihald þessa einstaka svæðis sem staðsett er í miðborg Reykjavíkur og á að nýtast allri fjölskyldunni til fjölbreyttrar útivistar og ánægju allt árið um kring.

Tillögum skal skila fyrir kl. 18:00 mánudaginn 12. mars 2012. Nánari upplýsingar um skil er að finna í samkeppnislýsingu.

Trúnaðarmaður keppninnar Guðmundur Rafn Sigurðsson tekur við fyrirspurnum varðandi keppnina á netfangið gudmundur.rafn.sigurdsson@kirkjan.is.

Fyrirspurnir sem bárust varðandi keppnina og svör við þeim er að finna hér.

Samkeppnislýsing og samkeppnisgögn:

Samkeppnislýsingu er að finna hér í pdf-skjali.

Kortagrunna og önnur samkeppnisgögn er að finna hér á vef Norræna hússins.


Dómnefnd skipa:
  • Sigurlaug Ingibjörg Lövdahl, Háskóli Íslands
  • Stig Lennart Andersson, landslagsarkitekt og prófessor við Kaupmannahafnarháskóla.
  • Max Dager, forstjóri Norræna hússins
  • Björn Axelsson, umhverfisstj. Skipulags- og byggingarsvið Rvk., Landslagsarkitekt FÍLA
  • Inga Rut Gylfadóttir, Landslagsarkitekt FÍLA og formaður FÍLA

Áætlað er að dómnefnd ljúki störfum fyrir 22. mars 2012



www.norraenahusid.is
www.fila.is