Næsti fyrirlestur í fyrirlestraröð Hönnunarmiðstöðvar og Listasafn Reykjavíkur ber yfirskriftina
skapandi fyrirtæki og fer fram nk.
fimmtudag 12. nóvember kl. 20:00 í Hafnarnúsi Listasafns Reykjavíkur.
Fyrirlesarar kvöldsins eru:
Margrét Sigrún Sigurðardóttir er aðjúnkt við Viðskiptafræðideild Háskóla Ísland, þar sem hún veitir Rannsóknarmiðstöð um skapandi greinar jafnframt forystu.
Hún fjallar um bókina Penny for your thoughts – 10 lessons to help you invest in and grow with a creative business.
Höfundar bókarinnar hafa um árabil stundað rannsóknir á sviði skapandi
atvinnugreina. Þær rannsóknir hafa leitt í ljós gagnkvæma fordóma í
lista- og viðskiptaheiminum og telja höfundar að vinna mætti gegn
fordómunum með því að skapa samræðugrundvöll milli þessara tveggja
heima. Bókin er byggð á viðtölum við fjölda fólks sem starfar í
fyrirtækjum í skapandi rekstri á Norðurlöndum, allt frá einyrkjum upp í
fyrirtæki skráð á hlutabréfamarkaði.
Þótt bókin taki dæmi af stofnun og rekstri skapandi fyrirtækja er henni
ekki ætlað að vera kennslubók í rekstri og stofnun fyrirtækja heldur að
gefa ráð um rekstur og vöxt með því að deila reynslu innan nokkurra
fyrirtækja af fjármögnun og skipulagningu fjarhagslegrar framtíðar
þeirra.
Auk Margrétar eru höfundar bókarinnar, Tobias Nielsén er ráðgjafi og
útgefandi og hefur stundað rannsóknir á skapandi atvinnugreinum og
Dominic Power er prófessor í hagrænni landafræði við Háskólann í
Uppsölum.
|
Helga Valfells er sérfræðingur fjárfestinga hjá Nýsköpunarsjóði og mun fjalla um fjárfestingastefnu Nýsköpunarsjóðs og Frumtaks.
Gunnar Hilmarsson fatahönnuður og frumkvöðull hjá Andersen&Lauth segir frá uppbyggingu fyrirtækisins. Fyrirtækið hefur byggst hratt upp undanfarin ár en Frumtak fjárfesti í fyrirtækinu fyrr á þessu ári.
Glærur frá fyrirlesurum eru aðgengilegar hér að neðan:
Margrét Sigrún Sigurðardóttir | Penny for your thoughts
Helga Valfells | Nýsköpunarsjóður og Frumtak
Gunnar Hilmarsson | Andersen