Fyrirlestrar

Gestagangur í LHÍ | Richard Saja



Miðvikudaginn 13. maí kl. 12.10 heldur Richard Saja fyrirlesturinn Historically Inaccurate í fyrirlestraröð Hönnunar- og arkitektúrdeildar Listahákóla Íslands, GESTAGANGI í Þverholti 11, fyrirlestrarsal A.
 
Richard Saja er listamaður með aðsetur í Hudson, New York. Eftir að hafa stundað nám í hönnun við University of the Arts í Philadelphíu, stúderaði hann vestræna menningu við St Johns College í Santa Fe. Hann starfaði stuttlega sem listrænn stjórnandi í auglýsingabransanum á Madison Avenue, en öll hans áhugamál runnu saman í eitt þegar hann stofnaði lítið hönnunarfyrirtæki, Historically Inaccurate Decorative Arts.
 
Þó Saja finni stundum þörf fyrir að kanna aðrar sköpunarleiðir en þær sem tengjast nálinni, byggja flest hans verk á því að nota útsaum til að umbreyta frönskum efnum með klassískum munstrum.
Saja hefur sýnt verk sín víða um heim, í París, Berlín og Suður Kóreu en nýlega sýndi hann í Robert Miller Gallery, New York, og Museum of Fine Arts Boston. Bróderað efni hans er hluti af safneign Shelburne Museum í Vermont og Philadelphia Museum of Art.
 
Hádegisfyrirlesturinn er í sal A í húsnæði Hönnunar- og arkitektúrdeildar að Þverholti 11.
 
Fyrirlesturinn fer fram á ensku og eru allir velkomnir.
 
The lecture is in English and open to the public.

Viðburður á Facebook