Fyrirlestrar

Málþing um arkitektúr í verkum Katrínar Sigurðardóttur



Listasafn Reykjavíkur boðar til málþings í Hafnarhúsi 1. mars í tengslum við sýningu á verkinu Undirstöðu eftir Katrínu Sigurðardóttur. Verkið var framlag Íslands á Feneyjartvíæringnum 2013.

Fjallað verður um arkitektúr í verkum Katrínar auk þess sem listamaðurinn mun ræða ítarlega um verkið sem nú er hægt að upplifa í Hafnarhúsi. Á málþinginu verður pallborðsumræða með þátttöku 4 arkitekta sem hafa unnið með Katrínu að verkum hennar eða þekkja vel til þeirra. Þá ætlar Julian E. Bronner blaðamaður hjá Artforum að ræða um verkið Undirstöðu við listamanninn.

Þátttakendur: Pétur H. Ármannson arkitekt, Sigrún Birgisdóttur, deildarforseti Hönnunar- og arkitektúrdeildar Listaháskóla Íslands, Julian E. Bronner, blaðamaður hjá Artforum, Hólmfríður Ósmann Jónsdóttir og Hrefna Björg Þorsteinsdóttir, arkitektar hjá Arkibúllunni. Einar Örn Benediktsson, formaður menningar- og ferðamálasviðs Reykjavíkurborgar flytur inngang.

Málþingið hefst kl. 13 og fer fram á íslensku og ensku. Ókeypis aðgangur.

Dagskrá

13.00
Inngangur: Einar Örn Benediktsson

13.15-14.30
Pallborðsumræður: Pétur H. Ármannsson, Hólmfríður Ósmann Jónsdóttir og Hrefna Björg Þorsteinsdóttir.
Sigrún Birgisdóttir leiðir umræður.

14.30-15.00
Kaffihlé

15.00-16.00
Katrín Sigurðardóttir í samtali við Julian E. Bronner.