Fyrirlestrar

Hádegisfyrirlestur í LHÍ | Birna Geirfinnsdóttir



Miðvikudaginn 15. janúar kl. 12.10 heldur Birna Geirfinnsdóttir erindið „Heildarmynd“ í fyrirlestrarröð Hönnunar- og arkitektúrdeildar Listaháskóla Íslands, SNEIÐMYND í Þverholti 11, fyrirlestrarsal A.

Birna hefur unnið sjálfstætt frá árinu 2004 og sinnt stundakennslu við Listaháskóla Íslands frá því að hún lauk námi árið 2006. Á árunum 2006–2009 vann hún á Vinnustofu Atla Hilmarssonar. Að loknu MA námi við Háskólann í Reading vann hún um tíma í London. Hún tók við stöðu fagstjóra og lektors við grafíska hönnun árið 2013.

Birna hefur lagt mesta áherslu á að miðla þekkingu sinni á hverskyns leturmeðhöndlun, bókahönnun, umbroti og bókagerð í kennslu. Hún hefur það að leiðarljósi að leggja áherslu á nákvæmnisatriði og heildarmynd þeirra verkefna sem hún vinnur að ásamt því að skilgreina eigin vinnubrögð, sérstöðu og vinna út frá samhengi. Helstu verkefni Birnu eru bókahönnun ásamt rannsóknum á sviði leturmeðhöndlunar og flókinnar týpógra

Sneiðmynd - skapandi umbreyting

Í fyrirlestrum vetrarins kynna kennarar deildarinnar eigin viðfangsefni og ræða tengsl þeirra við kennslu og uppbyggingu náms við deildina. Auk þess að fjalla um eigin verkefni verða tengsl sköpunar við kennslu, hönnun, rannsóknir og þekkingaröflun rædd út frá ýmsum sjónarhornum.

Við Hönnunar- og arkitektúrdeild er boðið upp á nám á fjórum námsbrautum til bakkalárgráðu, í arkitektúr, fatahönnun, grafískri hönnun og vöruhönnun, auk þess sem boðið er upp á nám í hönnun á meistarastigi.

Dagskrá vorsins:

15. janúar kl. 12.10
Birna Geirfinnsdóttir, lektor og fagstjóri í grafískri hönnun
Heildarmynd

22. janúar kl. 12.10
Halldór Arnar Úlfarsson, umsjónarmaður módelverkstæðis
Að gera án þess að kunna

29. janúar kl. 12.10
Thomas Pausz, aðjúnkt í vöruhönnun
Elastic Editions

12. febrúar kl. 12.10
Katrín Káradóttir, aðjúnkt og fagstjóri í fatahönnun
Ekkert er af engu komið

26. febrúar kl. 12.10
Massimo Santanicchia, lektor í arkitektúr
The Discovery of Architecture

12. mars kl. 12.10
Sigrún Birgisdóttir, arkitekt og deildarforseti
Lesið í rými

26. mars kl. 12.10
Bryndís Björgvinsdóttir, aðjúnkt í fræðigreinum
Hafsjór af heimildum: Af hverju er gaman að vera til?

9. aprí kl. 12.10
Lóa Auðunsdóttir, aðjúnkt í grafískri hönnun
Hin nýja fagurfræði

30. apríl kl. 12.10
Guðmundur Oddur Magnússon, prófessor í grafískri hönnun
Grafískur heimur

Hádegisfyrirlestrarnir eru í Sal A í húsnæði Hönnunar- og arkitektúrdeildar að Þverholti 11. Allir eru velkomnir.