Fyrirlestrar

Fyrirlestur | Grundvöllur grafískrar hönnunar



Guðmundur Oddur Magnússon prófessor í grafískri hönnun við Listaháskóla Íslands flytur fyrirlestur í Hönnunarsafni Íslands miðvikudagskvöldið 14. nóvember kl. 20.

Fyrirlesturinn er haldinn í tilefni af yfirstandandi sýningu á verkum Gísla B. Björnssonar í safninu. Í fyrirlestrinum mun Goddur fjalla um fyrstu teiknarana okkar, frumkvöðla grafískrar hönnunar á Íslandi og taka fyrir helstu verk þeirra. Ferill Gísla B. Björnssonar verður sérstaklega tekinn fyrir en hann hefur sleitulaust unnið að því allan sinn feril frá upphafi 7. áratugar 20. aldar að gefa starfi grafísks hönnuðar svipmót og virðingu í huga almennings.

Hann hefur markað djúp spor á sinni starfstíð spor sem varða fagurfræðilega, faglega, siðferðislega og félagslega mörkun starfsgreinar sem við köllum í dag grafíska hönnun. Fyrirbærið varðar tjáskipti, miðlun upplýsinga og þekkingar, varðveislu hennar í formi myndmáls, ritmáls og tenginguna þar á milli. Það varðar fjölmiðlun, ímyndasmíði og markaðssetningu.

Nánari upplýsingar um sýninguna minna finna hér og í fræðsludagskrá og sýninguna á heimasíðu safnsins, www.honnunarsafn.is.

Fyrirlesturinn hefst sem fyrr segir kl. 20 og er öllum opinn. Aðgangur er ókeypis og er áhugafólk um sögu íslenskrar hönnunar hvatt til að mæta!

Hönnunarsafn Íslands
Garðatorg 1
210 Garðabær

Opið alla daga nema mánudaga frá kl. 12 - 17.
Ókeypis aðgangur á miðvikudögum