Fyrirlestrar

PLAST | Framleiðslu- og vinnslumöguleikar



Hádegiserindið miðvikudaginn 25. janúar kl. 12.10 – 13.00
Guðbrandur Sigurðsson framkvæmdastjóri Plastprents heldur erindi í Toppstöð


Þá er komið að fjórða erindinu í erindaröð Toppstöðvarinnar og Samtaka iðnaðarins um íslenska framleiðslu, hráefni og vinnslumöguleika.

Guðbrandur Sigurðsson framkvæmdastjóri Plastprents fjallar um plast og hagnýtingu þess í iðnaði og þá sérstaklega um hlutverk þess í umbúðum. Erindinu er skipt í þrjá hluta. Í fyrsta hlutanum er sagt frá starfsemi Plastprents og þeim vörum sem félagið framleiðir. Í öðru lagi er fjallað um umbúðamarkaðinn á Íslandi og hvernig hann skiptist á milli plastumbúða, pappírs og annarra þátta. Að lokum er gert grein fyrir sögu plastefna og hagnýtingu þeirra í iðnaði og endurvinnslu þeirra sem fer vaxandi.

Erindið er öllum opið. Hönnuðir sérstaklega hvattir til að koma.

Gestalisti á fésbókarsíðu Toppstöðvarinnar.