Fyrirlestrar

EUWIIN 2011 | Ráðstefna í Hörpu

Samtök frumkvöðlakvenna halda glæsilega alþjóðlega ráðstefnu, EUWIIN 2011, í tónlistar- og ráðstefnuhúsinu Hörpu þann 7.-8. september næstkomandi, og er gert ráð fyrir að minnsta kosti 300 manns víðsvegar að úr heiminum. Ráðstefnan átti að vera í maí en frestaðist vegna eldgoss í Grímsvötnum.

Tilgangur ráðstefnunnar er að vekja athygli á uppfinninga- og frumkvöðlastarfsemi kvenna og vonast er til að það muni stuðla að betri tækifærum kvenna og auka áhugann á málefninu. Karlar eru sérstaklega hvattir til þess að mæta og taka þátt og kynna sér hvað konur eru að finna upp, víðs vegar í heiminu.

Allar nánari upplýsingar veitir Elinóra Inga Sigurðardóttir, formaður og stofnandi KVENN, í síma 898 4661. Netfang: elinoras@gmail.com. Upplýsingar og skráning á ráðstefnuna fer fram á www.kvenn.net

Hér má nálgast fréttatilkynningu ráðstefnunnar:KVENN_EUWIIN_frettatilkynning.pdf