Fyrirlestrar

Arkís og vistvænar byggingar | Fyrirlestur



ARKÍS Á FIMMTUDAGSSÍÐDEGI Í HAFNARHÚSI LISTASAFNS REYKJAVÍKUR

Arkís og vistvænar byggingar - Fyrirlestur. Hafnarhús, fimmtudag 3. mars kl.17


Arkitektastofan ARKÍS, sem hefur viðamikla reynslu af verkefnum í skipulagi og arkitektúr, mun kynna verkefni stofunnar, t.a.m. gestastofuna á Skriðuklaustri sem er þegar risin, gestastofu á Snæfellsnesi og Náttúrufræðistofnun í Urriðaholti á fyrirlestri sem byggingarlistardeild Listasafn Reykjavíkur stendur fyrir næstkomandi fimmtudag.

ARKÍS er margverðlaunuð, framsækin arkitektastofa sem starfað hefur frá árinu 1997. Verk ARKÍS spanna öll svið arkitektúrs, skipulags og hönnunar auk þess sem stofan býður upp á alhliða ráðgjöf varðandi umhverfisvæna hönnun og BREEAM umhverfisvottun. Öll hús ARKÍS eru hönnuð út frá hönnunarviðmiðum fyrir vistvænar byggingar.

Fyrirlesturinn er skipulagður í tengslum við sýninguna Án áfangastaðar sem stendur yfir í Hafnarhúsi Listasafns Reykjavíkur. Útgangspunktur sýningarinnar er ferðahugurinn og upplifun ferðamannsins á því umhverfi sem verður á vegi hans. Verkin endurspegla hugmyndir samtímalistamanna um ferðalög, staði og staðleysur og beina sjónum að hinu skapandi og persónulega samtali sem á sér stað við upplifun ólíkra staða og mótar hugmyndir okkar um þá.

Viðburðurinn er ókeypis og stendur öllum opinn.




listasafnreykjavikur.is