Fyrirlestrar

Fyrirlestur | Vatnavinir

 
 
VATNAVINIR Á FIMMTUDAGSKVÖLDI Í HAFNARHÚSI LISTASAFNS REYKJAVÍKUR

Vatnavinir samanstanda af alþjóðlegum hópi fagfólks sem koma úr ólíkum greinum byggingarlistar, hönnunar, markaðssetningar, ferðamennsku, heimspeki og listum.

Hópurinn hefur um árabil unnið að hugmyndafræði sem byggir á fjölbreyttri uppbyggingu atvinnulífs og sjálfbærri nýtingu auðlinda Íslands með heilsutengdri ferðaþjónustu í nánum tengslum við jarðvarma og náttúru landsins. Undir yfirskriftinni Heilsulandið Ísland hafa þau kortlagt staði og möguleika, og unnið að endurbótum á eldri laugum og baðstöðum ásamt því að koma að uppbyggingu nýrra heilsulinda víðsvegar um landið.

Mikill metnaður einkennir starf Vatnavina og verkefni þeirra fyrir Vestfirðina sem unnið var í samstarfi við staðarhaldara á hverjum stað, sveitafélögin og atvinnuþróunarfélag Vestfjarða hlaut núverið verðlaunin European Destination of Excellence 2010. Auk þess voru Vatnavinir valdir fyrir hönd Íslands á norrænu sýninguna manMADEenvironment sem sett var upp í Norsk Form í Osló fyrir stuttu og mun þaðan ferðast á milli allra Norðurlandanna og verður hér í Norræna Húsinu á Íslandi næsta sumar.

Á fimmtudagskvöldið mun Olga Guðrún Sigfúsdóttir, arkitekt FAÍ kynna hugmyndafræði og verkefni hópsins, þ.m.t. Vestfjarðaverkefnið, Suður- og Norðurland auk spennandi hugmynda fyrir baðborgina Reykjavík. Hafnarhúsi Listasafns Reykjavíkur klukkan 20:00. Ókeypis er inn og allir velkomnir.