Fyrirlestrar

Reykjavík Central Park | Fyrirlestur

Teiknistofan h a p p y s p a c e frá Stokkhólmi, kynnir tillögu sína fyrir svæðið sem liggur milli Ráðhússins og Nauthólsvíkurinnar í fyrirlestri í Tjarnarsal Ráðhúss Reykjavíkur föstudaginn 5. nóvember kl. 12. Tillagan er teiknuð að beiðni Norræna hússins.

Tillagan byggir á landfræðilegum og jarðfræðilegum sérkennum svæðissins og endurheimt votlendissins. Meginhugmynd tillögunnar byggir á sjónásum til fjalla og grænum trefli sem liggur þvert í gegnum miðbæinn og tengir strandlínurnar til norðurs og suðurs. Þetta skapar einstök tækifæri fyrir leik og útiveru. Jaðar garðsins verður aðlaðandi svæði á mörkum borgar og náttúru. „Central Park Reykjavík“ verður græn líflína borgarinnar, staður til að hittast og skemmta sér, svæði sem gefur möguleika á að víkka út sjóndeildarhringinn. Garðinum má líkja við Central Park garðinn í New York borg en tekur mið af íslenskum aðstæðum, byggir á staðbundnum forsendum og dregur þar að auki upp heillandi framtíðarsýn.