Fyrirlestrar

Textíll í víðum römmum og kynning á starfsemi Textílseturs Íslands



Þriðjudaginn 20. apríl mun Textílsetur Íslands í Kvennaskólanum á Blönduósi kynna starfsemi sína í hádegisfyrirlestri í Þjóðminjasafni Íslands.

Í framhaldi mun Birna Kristjánsdóttir frá Háskólasetrinu á Blönduósi  flytja erindið „Textíll í víðum römmum.“

Fyrirlestrarnir eru hluti af hádegisfyrirlestraröð Þjóðminjasafns Íslands, en í vor hefur verið fjallað um íslenska hannyrðahefð í fortíð og nútíð.

Dagskráin hefst kl. 12:05 og tekur um þrjú korter. Aðgangur er ókeypis og allir velkomnir.  

Titill erindisins, Textíll í víðum römmum, er skírskotun til ferðalags, með það að markmiði að skoða textíl. Texti um textíl sem kallar fram fleiri spurningar en svör. Óljósar myndir textíltilveru  samtímans  eru dregnar upp, inn í ramma fagsviðs  án landamæra.  Birna sinnir rannsóknum í textíl við Háskólasetrið á Blönduósi og kennir við ferðamáladeild Háskólans á Hólum.