Fyrirlestraröð í Hafnarhúsi

15.4.2013

Alþingiskosningar 2013 | Hönnun og arkitektúr



Fulltrúum stærstu framboðsflokkanna hefur verið boðin þátttaka í málþingi um hönnun-og arkitektúr í Listasafni Reykjavíkur Hafnarhúsi, fimmtudaginn 18. apríl kl. 20.  Málþingið er hluti af fyrirlestraröð Hönnunarmiðstöðvar Íslands sem haldin er í samstarfi við Listasafn Reykjavíkur og Listaháskóla Íslands.

Fulltrúar flokkanna halda stutta framsögu um hvernig þeirra flokkur mun beita sér í málefnum hönnunar og arkitektúrs og eftir það taka þátt í umræðum undir stjórn Jóhannesar Þórðarsonar arkitekts sem tók þátt í mótun Hönnunarstefnu fyrir Íslands og Menningarstefnu í mannvirkjagerð.

Þátttakendur málþingsins eru:
Björt framtíð - Heiða Kristín Helgadóttir
Dögun - Ólöf Guðný Valdimarsdóttir
Framsóknarflokkurinn - Vigdís Hauksdóttir
Samfylkingin - Össur Skarphéðinsson
Sjálfstæðisflokkurinn - Hanna Birna Kristjánsdóttir
Vinstri Grænir - Árni Þór Sigurðsson

Umræðurnar verða á grundvelli Menningarstefnu í mannvirkjagerð: stefna íslenskra stjórnvalda íbyggingarlist sem var útgefin og samþykkt í ríkisstjórn árið 2007 og Hönnunarstefnu fyrir Íslands sem samþykkt var í ríkisstjórn þann 12. mars 2013. Hönnunarstefnan miðar að því að auka vægi hönnunar í allri vöruhugsun, vöruþróun og framleiðslu með það að sjónarmiði að styrkja samkeppnisstöðu íslenskra fyrirtækja og auka verðmætasköpun.

Smellið á tenglana til að hlaða niður pdf. af stefnunum:
Hönnunarstefna 2013-2018 - Hönnun sem drifkraftur til framtíðar
Menningarstefna í mannvirkjagerð: stefna íslenskra stjórnvalda í byggingarlist

Listasafn Reykjavíkur, Hafnarhúsi, 18. apríl kl. 20. Allir velkomnir.
Viðburðurinn á Facebook