Fata- og textílhönnun | Dagskrá HönnunarMars 2011

Mynsturmergð

Epal | Skeifan 6 | 24.-27.03 10:00–18:00

Hönnuðir Textílfélagsins sýna efni, gluggatjöld, púða, teppi, mottur, lampa og hljóðdempun. Hér tengist hönnun og iðnaður á Íslandi í prjóni, þæfingu, þrykki, vefnaði og útskurði sem birtist í mynsturmergð í ólíku hráefni. Textílhönnuðir verða á staðnum meðan á sýningunni stendur.

Þátttakendur eru: Aðalbjörg Erlendsdóttir, Anna Guðmundsdóttir, Anna Gunnarsdóttir, Bjargey Ingólfsdóttir, Bryndís Bolladóttir, Brynja Emilsdóttir, Guðlaug Halldórsdóttir, Helena Sólbrá Kristinsdóttir, Helga Pálína Brynjólfsdóttir, Hrönn Vilhelmsdóttir, Rósa Helgadóttir, Sigríður Ólafsdóttir, Sigríður Elfa Sigurðardóttir, Styrgerður Haraldsdóttir, Þóra Björk Schram og Þórey Eyþórsdóttir.

bjorg.pje@gmail.com














Fata- og textílhönnun




Dagskrá