Fata- og textílhönnun | Dagskrá HönnunarMars 2011

Á gráu svæði | Hrafnhildur Arnardóttir

Hönnunarsafn Íslands | Garðatorg 1 | 23.03–29.05

Á gráu svæði er 
sýning Hönnunarsafns Íslands á HönnunarMars 2011

.



Hrafnhildur Arnardóttir, Shoplifter, hefur skapað sér mikla sérstöðu 
innan listheimsins með notkun á hári í verkum sínum. Nú nýverið hlaut Hrafnhildur mikilvæga viðurkenningu þegar hún var var valin fulltrúi hinna virtu Norrænu textílverðlauna sem verða afhent síðar á þessu ári. Hárið í verkum Hrafnhildar gegnir ekki aðeins hlutverki uppistöðu heldur er táknheimur og merkingarbærni þess ríkur hluti af myndsköpun Hrafnhildar. Almennt séð er
 hárið hluti af sjálfsmynd mannsins, glæsileika hans og hégóma en það getur
 einnig vakið ónotakennd og er nánast órjúfanlegur hluti þess að skapa
 ógeðfelldar persónur og mystík og ná fram myndheimi myrkra afla.

Hárið, þessi fínlegi þráður, hefur sótt í sig veðrið í verkum Hrafnhildar
 og í dag á hún að baki mörg samstarfsverkefni með hönnuðum og listamönnum 
þar sem verk hennar undirstrika þá þrjá meginþætti sem bera tískuna uppi,
 fágunina og hið ögrandi og öfgakennda. Það síðastnefnda má oft rekja til
 djúpra persónulegra túlkana listamanna og hönnuða þar sem fullkominni
 stjórn á efni, lit og formi er náð. Verk Hrafnhildar hafa víða komið við
 sögu í tískuheiminum, þá gjarnan í samstarfi við Eddu Guðmundsdóttur 
stílista í New York og samstarf Hrafnhildar og Bjarkar fyrir umslag plötunnar Medulla
 er dæmigert fyrir þá skörun sem myndlist og hönnun Hrafnhildar virðist 
reglulega rata í.

Fatnaður, grímur og skúlptúrar eftir Hrafnhildi og samstarfsaðila hennar 
eru vissulega skapaðir úr óhefðbundnum efnivið á tímum endurnýtingar og
 umhverfissjónarmiða. En þessi sköpun er ekki síst til þess fallin að varpa
ljósi á ýmis óræð mörk í menningarsamfélögum. Þess sem er viðtekið á einum
 stað en hafnað annars staðar og hugmyndarinnar um fegurð og þess
 afkáralega og veginum þarna á milli, sem oftar en ekki er varðaður 
léttleika og húmor.

Opnunarhóf verður haldið kl. 17, 23. mars.

honnunarsafn.is
harpa@honnunarsafn.is














Fata- og textílhönnun




Dagskrá