Fyrirlestraröð í Hafnarhúsi

17.9.2012

Fyrirlestrarröð | „Þetta er bara mýri...“



Í fyrirlestrinum fjalla þær um hönnunarferlið og þverfaglega nálgun á fyrirbærinu náttúra. Mýrin, bensínstöð farfuglanna og öndunarfæri landsins, var í ferlinu skorin í sneiðar, bútuð í sundur og krufin. Leitast var við að færa fræðin nær okkur, varpa ljósi á hringrásina og upphefja jarðveginn. Í Norræna húsinu var mýrin að lokum saumuð aftur saman, troðið niður í kjallara og skellt upp á vegg.

Hönnuðurnir tveir leiða nú saman hesta sína á hönnunarsviðinu í fyrsta sinn síðan þær tengdust böndum í myndmenntartímum í fjölbrautaskóla. Brynhildur nam vöruhönnun við Listaháskóla Íslands og Gerrit Rietveld Academie í Hollandi og hefur síðan unnið sjálfstætt sem hönnuður, meðal verkefna má nefna Vík Prjónsdóttir, Súkkulaðifjöllin og Stefnumót hönnuða og bænda. Magnea útskrifaðist sem arkitekt árið 2009 frá Architectural Association í London og hefur m.a. unnið við ráðgjöf og rannsóknir á borgarhönnun og kennt arkitektúr við University of East London.

Lífið í Vatnsmýrinni er sýning í Norræna húsinu, hönnuð af Brynhildi Pálsdóttur hönnuði og Magneu Guðmundsdóttur arkitekt. Sýningin er samstarfsverkefni Norræna hússins, Háskóla Íslands og Reykjavíkurborgar og er liður í því að endurheimta votlendið í Vatnsmýrinni og virkja friðinn í varplandinu. Verkefnastjóri sýningarinnar er Katrín Ragnars og sýningarstjórn í höndum Sigrúnar Kristjánsdóttur. Um grafíska hönnun sáu Ármann Agnarsson og Jónas Valtýsson.

Fyrirlesturinn verður haldinn fimmtudaginn 20.septmber í Listasafni Reykjavíkur kl. 20:00.

Sýningin „Lífið í Vatnsmýrinni“ stendur til 4 nóvember.
http://www.nordice.is/norraena-husid/frettir/nr/1442