Fyrirlestraröð í Hafnarhúsi

12.3.2012

Fyrirlestur | Giulio Vinaccia



Hönnuðurinn Giulio Vinaccia heldur fyrirlestur undir yfirskriftinni „Hönnun í þróunarskyni" í Fyrirlestraröð Hönnunarmiðstöðvar, Listaháskóla Íslands og Listasafns Reykjavíkur, fimmtudaginn 15. mars kl. 17.

Giulio Vinaccia sem komið hefur að ótal samfélagslegum verkefnum um allan heim, veltir upp hugmyndum um hugmyndafræði hönnunar sem mögulegu síðasta vígi til sóknar fyrir íbúa í efnahagslega minna þróuðum löndum heimsins og spyr spurninga eins og hvernig auka megi aðgengi íbúa jaðarsvæða að hagkerfi hönnunarheimsins?

Giulio Vinaccia er hér á landi í boði Nýsköpunarmiðstöðvar Íslands www.nmi.is


http://www.vinaccia.it/
http://www.youtube.com/user/studiovinaccia
http://vinacciaintegraldesign.blogspot.com/