Fyrirlestraröð í Hafnarhúsi

14.2.2012

Fyrirlestur | Nýsköpunarmiðstöð Íslands



Bjarnheiður Jóhannsdóttir og Guðmundur Óli Hilmisson kynna þjónustu Nýsköpunarmiðstöðvar Íslands og helstu styrki og stuðningsmöguleika í fyrirlestraröð Hönnunarmiðstöðvar, Listaháskólans og Listasafns Reykjavíkur nk. fimmtudag 16. febrúar kl. 20 í Hafnarhúsi.

Sérstök áhersla verður lögð á Átak til atvinnusköpunar sem er styrkáætlun fyrir nýsköpunarverkefni og markaðsaðgerðir starfandi frumkvöðla- og nýsköpunarfyrirtækja. Næsti umsóknarfrestur í Átakið er til 1. mars.

nmi.is