We Live Here
WE LIVE HERE er samstarfsverkefni Hönnunarmiðstöðvar Íslands og Desgin Forum Finland, sem átti sér stað á Hönnunarvikunni í Stokkhólmi 201. Markmið WE LIVE HERE er að kanna nýjar leiðir til að kynna norræna hönnun á alþjóðavettvangi.
Íslenskir og finnskir hönnuðir rugluðu saman reytum og hófu sambúð á hönnunarvikunni í Stokkhólmi 2015. Flutt var í fallega íbúð í miðborg Stokkhólms, en íbúðin var í senn sýningar- og viðburðarrými. Heimilið endurspeglaði norræna lifnaðarhætti þar sem allt innbú samanstóð af framúrskarandi hönnunarmunum frá báðum þjóðum. WE LIVE HERE var því hvor tveggja sýning á íslenskri og finnskri samtímahönnun sem og vettvangur fyrir hönnuði til þess að efla tengslanet sitt og kynnast norrænu hönnunarsenunni, en ýmsir viðburðir voru í gangi í íbúðinni á meðan sýningunni stóð.
Sem dæmi um þátttakendur í verkefninu má nefna
Harri Koskinen, Katrin Olina, Kustaa Saksi og
Vík Prónsdóttir. Þar að auki voru hönnuðir sem eru leiðandi í sænsku hönnunarsenunni, á borð við
Monica Förster, TAF Architects, Färg & Blanche, Form Us With Love og
Katrin Greiling sem tóku þátt í verkefninu og buðu norræna nágranna sína velkomna.
Markmið sýningarinnar var að endurspeglar flutninga, og beina m.a. sjónum að því hvernig tveir samskonar hlutir mætast þegar tveir einstaklingar hefja sambúð. Sýningastjórar voru
Hlín Helga Guðlaugsdóttir, Elina Aalto og
Marika Tesolin, þær segja:
„Við miðlum viðfangsefnum í gegnum hluti og verkefni líðandi stundar. Skoðum hvað er líkt - og ólíkt í form-tungumáli finnskrar og íslenskrar hönnunar, sambandi okkar við efniviðinn, iðnaðinn, og nálgun í hönnun. Vinnuferlið leiddi í ljós sterk þemu sem mynda samstæður, andstæður og áhugavert samtal sem leiddi okkur í valinu á munum inn á heimilið. Sýningin er ekki yfirlitssýning hönnunar þessara tveggja landa, heldur tilraun til að fara yfir sviðið og sýna breiddina í grófum dráttum.
Við höfum leitast við að leggja áherslu á það sem er áhugavert í dag, í stað þess að einblína á það sem er „nýtt” eins og oft nær yfirhöndinni í umræðu um hönnun. Með þessari nálgun vonumst við til að varpa ljósi á styrkleika íslenskra og finnska hönnuða, hvers þeir eru megnugir og erindi þeirra á norrænu hönnunarsenunni í dag.”
Nánar á
heimasíðu WE LIVE HERE.
Sýningarstjórar WE LIVE HERE: Elina Aalto, Marika Tesolin og Hlín Helga Guðlaugsdóttir,
Halla Helgadóttir, framkvæmdastjóri Hönnunarmiðstöðvar íslands segir
“WE LIVE HERE er spennandi samstarfsverkefni milli norrænna kynningarmiðstöðva á sviði hönnunar. Tilgangurinn er að kynna norræna hönnun á nýjan og markvissan hátt. Þátttakendur taka þátt í verkefninu á jafnréttisgrundvelli þar sem stefnumótið sjálft og mannlegar hliðar þess er útgagnspunkturinn.
Verkefnið miðar að því að búa til stærri samstarfsverkefni milli hönnunarmiðstöðva frá öllum Norðurlöndum sem vinna að því sameiginlega markmiði að kynna norræna hönnun, lífsstíl og gildi – og skoða sameiginlega framtíð okkar á alþjóðavettvangi.“
Þátttakendur
Sýningin beinir sjónum að öllum hliðum hönnunar, enda er hönnun veigamikill hluti af tilveru okkar, svo sem húsgögn, vörur, matur og tíska. Hönnuðir og hönnunarfyrirtæki í
WE LIVE HERE verkefninu voru:
Uppfært eftir sýningu:
Smelltu hér
til að sjá þátttakendur WE LIVE HERE 2015
Finnland
Harri Koskinen, Mari Isopahkala, Com-pa-ny, Klaus Haapaniemi, Artek, Kustaa Saksi, HEM, Katriina Nuutinen, Kasper Nyman, Maija Puoskari, Samuji, Mika Tolvanen, Saana ja Olli, Aalto+Aalto, Hanna Anonen, Kirsi Enkovaara, Error Collective, Mikko Laakkonen, Teemu Keisteri & Bros, Linda Linko, Mandy Yau, MBorn, Choice, Iina Vuorivirta, Teemu Järvi, Poiat, Flora & Laura, Minna Parikka, R/H, CTRL, Kuula + Jylhä and POP table.
Ísland
Katrin Olina, Þórunn Arnadóttir, Vík Prjónsdóttir, Brynjar Sigurðarson, Dora Hansen, Dögg Design, Garðar Eyjólfsson, Færið, Siggi Eggertsson, Tinna Gunnarsdóttir, Sigga Heimis, Hanna Dís Whitehead, HAF Studio, Hugdetta, Scintilla, Snæfrið & Hildigunnur, Ihanna, Sigga Rún, Anna Thorunn, Studio Bility, GO FORM, Berlinord, Marymary, Postulina, Umemi, Leynivopnið, Volki, Águsta Sveinsdóttir, Runa Thórsdóttir & Hildur Steindórsdóttir, STAKA, Kría Jewelry and Fiona Cribben, Dóra Hansen, Færið og Crymogea.
Svíþjóð
Monica Förster, TAF Architects, Färg & Blanche and Katrin Greiling, Form Us With Love.
„Moodboard“ í vinnslu
Hljóðmynd heimilisins var unnin af
Lexter. Tónlist á vegum
Nordic Playlist, sem
Nordic Music Exchange skipuleggur. Dýrindis matur framreiddur á heimilinu, hannaður af íslenskum og finnskum kokkum,
Sami Tallberg og
Fannari Vernharðssyni, og eldhússkáparnir voru fylltir af fögrum
Iittala borðbúnaði. Að sýningu lokinni voru sýningargripirnir seldir á uppboði sem skipulagt var af
Lauritz.
Viðburðir
Fjöldi áhugaverðra viðburða fóru fram í íbúðinni en einnig var boðið upp á skemmtilegar vinnusmiðjur yfir helgi.
Hægt er að sjá myndir frá helstu viðburðunum á
facebooksíðu WE LIVE HERE.
Fjölskyldan
WE LIVE HERE er samstarfsverkefni kynningarmiðstöðva á sviði hönnunar
Design Forum Finland og
Iceland Design Centre í samstarfi við sænska fyrirtækið
Codesign. Sýningastjórar og hönnuðir sýningarinnar eru
Elina Aalto, Marika Tesolin og
Hlin Helga Gudlaugsdóttir. Ásýnd og grafísk hönnun er eftir
Sigga Odds og listrænt samstarf og ráðgjöf er í höndum
Sanna Åkerlund Gebeyehu, frá
Codesign.
Design Forum Finland kynnir mikilvægi hönnunar á öllum sviðum með það að markmiði að ýta undir verðmætasköpun og samkeppnishæfi í efnahagslífi og samfélagi. DFF er í eigu the Finnish Society of Crafts and Design sem eru næst elstu hönnunarsamtök í heiminum, stofnuð 1875.
www.designforum.fi
Hönnunarmiðstöð Íslands er kynningarmiðstöð íslenskrar hönnunar og arkitektúrs. Meginhlutverk Hönnunarmiðstöðvar er að efla skilning þjóðarinnar á mikilvægi hönnunar fyrir samfélagið og íslenskt efnahagslíf og ýta undir á þá miklu verðmætasköpun sem getur falist í íslenskri hönnun fyrir þjóðfélagið allt. Hutverk hönnunarmiðstöðvar er að vinna að framgangi og uppbyggingu á öllum sviðum hönnunar á Íslandi frá arkitektúr til fatahönnunar, grafískrar hönnunar og vöruhönnunar. Hönnunarmiðstöð er í eigu níu félaga íslenskrar hönnunar og rekin að hluta fyrir styrk frá íslenskum stjórnvöldum.
www.honnunarmidstod.is
Bestu vinir
Arkitektastofan
Codesign var stofnuð fyrir um 20 árum síðan. Í dag starfa þar 30 starfsmenn með fjölbreytta reynslu á breiðu sviði hönnunar, arkitektar, vöruhönnuðir, grafískir hönnuðir, verkefnastjórar og fólk sérhæft í ráðgjöf, upplýsingamiðlun, kynningamálum og breytingastjórnun.
www.codesign.se
Svensk Form (the Swedish Society of Crafts and Design) er kynningamiðstöð sænskrar hönnunar í Svíþjóð og á alþjóðavettvangi. SF er sjálfseignarstofnun sem vinnur í umboði sænskra stjórnvalda.
www.svenskform.se
Stockholm Design Week og
Stockholm Furniture & Light Fair er stærsta sýningin á norðurlöndum fyrir norrænu hönnunarsenuna.
www.stockholmdesignweek.com
www.furniturelightfair.se
Myndir
Hlín Helga Guðlaugsdóttir, mælir málin.
Ljósmyndir og upplýsingar um hönnuðir sem taka þátt:
http://bit.ly/14VUVze
Ljósmyndir og kynningarefni fyrir verkefnið:
http://bit.ly/1suyufl
Tengiliðir:
Verkefnastjórar:
Tanja Sipilä, Design Forum Finland | tanja.sipila@designforum | FI +358 400776786
Sari Peltonen, Iceland Design Centre | sari@icelanddesign.is | ISL +354 8629324
Listrænn stjórnandi:
Sanna Gebeyehu |
www.codesign.se
Sýningarstjórar:
Marika Tesolin | marika@from.fi
Elina Aalto | elina@aaltoaalto.com
Hlin Helga Gudlaugsdóttir | hlin.helga@me.com
Grafísk hönnun:
Sigurdur Oddsson |
www.siggiodds.com
www.we-live-here.org
www.facebook.com/welivehere2015
instagram.com/welivehere2015
#welivehere
Verkefnið er styrkt af Kreanord og Nordic Culture Fund.