Hönnunarmiðstöð Íslands
Hönnunarmiðstöð Íslands er kynningar- og upplýsingamiðstöð fyrir íslenska hönnun á Íslandi og erlendis. Meginhlutverk Hönnunarmiðstöðvar er að efla skilning þjóðarinnar á mikilvægi hönnunar fyrir samfélagið og íslenskt efnahagslíf og benda á þá miklu verðmætasköpun sem getur falist í íslenskri hönnun fyrir þjóðfélagið allt.
Hönnunarmiðstöð stuðlar að framgangi
íslenskra hönnuða erlendis, enda felast þar stór tækifæri fyrir íslenska hönnun og framleiðsluvörur.
Verkefni Hönnunarmiðstöðvar
Kynning
- Kynningarmiðstöð hönnunar og arkitektúrs á Íslandi
- Vekur athygli á framúrskarandi íslenskri hönnun erlendis
- Rekur vef á íslensku og ensku um íslenska hönnun og arkitektúr
- Stuðlar að faglegri umfjöllun um hönnun og arkitektúr
- Greiðir fyrir markaðssetningu og útflutningi íslenskrar hönnunar
Ráðgjöf
- Mótar hönnunarstefnu með stjórnvöldum
- Veitir hönnuðum ráðgjöf um vöruþróun, framleiðslu, ímyndaruppbyggingu og útflutning
- Styður sprota- og frumkvöðlafyrirtæki, með takmarkað fjármagn og þekkingu til að koma sér áfram
- Veitir fyrirtækjum og stofnunum ráðgjöf um hönnunartengd verkefni.
Nýsköpun
- Leiðir hönnuði og fyrirtæki saman í nýsköpunar- og vöruþróunarverkefnum
- Vinnur að því að auka fjármagn til þróunar hönnunarfyrirtækja
Samstarf
- Myndar tengsl á milli greina og hvetur til samstarfs og umræðu
- Stuðlar að auknum mælingum og rannsóknarvinnu varðandi umfang og vöxt hönnunargeirans
- Ýtir undir fræðslu í markaðsmálum, verkefnastjórnun og framleiðslu
Viðburðir
- Stendur fyrir fyrirlestrum, sýningum, ráðstefnum og HönnunarMars
Hönnunarmiðstöð Íslands er í eigu Arkitektafélags Íslands, Félags húsgagna og
innanhússarkitekta, Félags íslenskra landslagsarkitekta, Félags
vöru- og iðnhönnuða, Leirlistafélags Íslands, Fatahönnunarfélags
Íslands, Textílfélagsins, Félags íslenskra gullsmiða og Félags
íslenskra teiknara.
Hönnunarmiðstöð Íslands er rekin fyrir fjárframlög frá Mennta- og menningarmálaráðuneyti og Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneyti.
Sækja kynningarefni sem PDF