HönnunarMars 2009
Hönnunarmiðstöð stóð í fyrsta sinn í vor fyrir hönnunardögum undir
heitinu HönnunarMars. Dagskrá fyrsta
HönnunarMarsins var glæsileg og voru yfir 130 viðburðir í boði af eins
fjölbreyttum toga og víðfeðmi hönnunar gefur tilefni til. Við leyfum myndunum hér að neðan að tala
sínu máli og hlökkum til HönnunarMars að ári sem haldinn verður dagana 18. - 21. mars 2010.
Mikil stemning og fjölmenni var í opnunarteiti HönnunarMarsins
Verðlaun voru afhent i Hönnunarsamkeppninni Hönnun í anda Erró sem
Listasafn Reykjavíkur, Verslunin Kraum og Hönnunarmiðstöð stóðu fyrir.
Borgarstjórinn í Reykjavík, Hanna Birna Kristjánsdóttir afhenti
hönnuðinum Ingibjörgu Hönnu Bjarnadóttur verðlaun fyrir bestu
tillöguna við skemmtilega athöfn í Hafnarhúsi Listasafns Reykjavíkur í
HönnunarMars.
Fatahönnuðurinn MUNDI kynnti haust- og vetrarlínu sína fyrir fullu húsi í Hafnarhúsinu.
Kynning vegna útgáfu nýrrar íslenskrar Sjónabókar fór fram í Þjóðminjasafninu í HönnunarMars. Bókinni er ætlað að blása nýju lífi í þennan auðuga
formheim sem gömlu sjónabækurnar geyma. Á sýningunni í
Þjóðminjasafni Íslands gefst gestum tækifæri til að skoða bókina og
vinnuna á bak við útgáfuna sem og upprunalegu sjónabækurnar. Birna Geirfinnsdóttir grafískur hönnuður er aðalhönnuður bókarinnar.
Fyrirlestraröð Hönnunarmiðstöðvar og Morgunblaðsins í HönnunarMars
fór fram á Háskólatorgi og í Þjóðminjasafni Íslands við miklar
undirtektir. Fremstu hönnuðir okkar Íslendinga auk arkitektsins Bjarke
Ingels frá BIG og Paul Bennett frá IDEO, veittu áheyrendum innblástur.
Borðið, Leir 7 og matreiðslumeistarinn Friðrik V buðu til veislu þar
sem Hinn íslenski leirpottur var vígður við hátíðlega athöfn í HönnunarMars.
Hinn íslenski leirpottur er samstarfsverkefni Borðsins
hönnunarfyrirtæki Brynhildar Pálsdóttur og Guðfinnu Mjallar
Magnúsdóttur og Leirverksmiðjunnar Leir 7 á Stykkishólmi sem er í eigu
Sigríðar Erlu Guðmundsdóttur. Leirpotturinn er unninn úr íslenskum leir
frá Fagradal.
30 vöruhönnuðir glæddu tóm rými nýju lífi í HönnunarMars með
innsetningum á Laugaveginum og teygðu anga sína inn í verslanir í
Bankastræti.
Í samvinnu við Ráðuneytið og Listaháskóla Íslands efndi Hönnunarmiðstöð
til Pecha Kucha kvölds í Listasafni Reykjavíkur, Hafnarhúsi. Þessi
nýstárlega aðferð byggir á knöppum og fjölbreyttum fyrirlestrum.
Fatahönnunarfélag Íslands í samstarfi við Nordic Fashion Biennale bauð upp á tískuveislu í Norræna
húsinu i HönnunarMars. Íslenskir fatahönnuðir sýndu nýjustu strauma í fatatísku
næsta vetrar 2009-2010 og Norræna husið iðaði af lifi.
Hönnunarmiðstöð stóð í fyrsta sinn í ár fyrir hönnunardögum undir
heitinu HönnunarMars sem mun verða árlegur viðburður. Dagskrá fyrsta
HönnunarMarsins var glæsileg og voru yfir 150 viðburðir í boði af eins fjölbreyttum toga og víðfeðmi hönnunar gefur tilefni til.
Íslensk hönnun hverskonar hefur verið í deiglunni að undanförnu. Og skal
engan undra enda vekja íslenskir hönnuðir sífellt meiri athygli, bæði
hér heima sem og á erlendri grundu. HönnunarMars er ætlað að vekja
athygli á íslenskum hönnuðum og hönnun þeirra hjá almenningi,
fjölmiðlum og stjórnvöldum.
Sérstök áhersla var lögð á að bærinn myndi lifna við og að hönnun væri við hvert
fótmál. Tóm verslunarrými voru fyllt af íslenskri hönnun, kaffihús
flögguðu íslenskum bollum og diskum og glæsilegar sýningar og
innsetningar voru settar upp um allan bæ. Ekki má gleyma verslunum í
öðrum bæjarhlutum, sýningum og vinnustofum sem opnuðu dyr sínar fyrir
gestum.
Auk þess var að finna í HönnunarMars glæsilega fyrirlestraröð, málþing,
kvikmyndasýningar og nýstárlegar skoðunarferðir um borgina með leiðsögn
arkitekta.