HönnunarMars 2014 | Hönnuðir hittast



Hönnunarmiðstöð mun standa fyrir mánaðarlegum opnum fræðslu- og spjallfundum annan veturinn í röð. Fundirnir munu að mestu leyti snúast um HönnunarMars og sitthvað hagnýtt sem tengist þátttöku í hátíðinni. Boðað er til þess fyrsta miðvikudaginn 4. september kl. 17.30-19 á Bergsson Mathúsi, Templarasundi 3.


Fundirnir eru upplagðir ef:
  • Þú fefur áhuga á því að vera með viðburð á HönnunarMars 2014.
  • Þú villt fá hagnýtar upplýsingar um þátttöku á HönnunarMars 2014.
  • Þig langar til að nýta þau tækifæri til fullnustu sem HönnunarMars getur gefið þér.
  • Þú villt tengast fólki í hönnunargeirnum og/eða bæta tengslanet þitt enn betur.

Efnistaki fundanna er ætlað að vera gagnlegt hönnuðum og miðla hagnýtum upplýsingum um þátttöku í HönnunarMars og taka á viðfangsefnum sem tengjast hönnunarsenunni. Fundirnir verða haldnir mánaðarlega í ljúfu umhverfi Mathúss Bergsson, Templarasundi 3, þar sem hægt er að gæða sér á dýrindis veitingum í leiðinni.

Dagskrá fundanna veturinn 2013-2014

4. september 2013 | Hönnuðir hittast á ný
2. október 2013 | Kynning á erlendum hönnunarhátíðum
6. nóvember 2013 | Framsetning verkefna, miðlun og markaðssetning
4. desember 2014 | Verkefni í vinnslu fyrir HönnunarMars 2014
8. janúar 2014 | Þátttaka í kaupstefnunni DesignMatch
29. janúar 2014 | Skráning í dagskrá, spurningar og svör
12. mars  2014 | Upptaktur að HönnunarMars
9. apríl 2014 | Endurmatsfundur

Verið með í Hönnuðir hittast hópnum á Facebook, hann finnið þið hér.