HönnunarMars 2014 | DesignTalks



DesignTalks, fyrirlestrardagur Hönnunarmiðstöðvar á HönnunarMars 2014 ber titilinn Dealing with Reality. Þar verða framúrskarandi alþjóðlegir hönnuðir og arkitektar leiddir saman í erindum og umræðum um stefnumótun, framsýni og framtíðarsýn. Fundarstjórar eru Hlín Helga Guðlaugsdóttur, hönnuður, listrænn stjórnandi og lektor við Konstfack listaháskólann í Stokkhólmi og Stephan Sigrist frá svissnesku hugveitunni W.I.R.E.

Fyrirlesarar eru Calvin Klein, fatahönnuður, stofnandi og eigandi Calvin Klein Inc., Robert Wong (Chief Creative Officer) hjá Google Creative Lab, Kathryn Firth, arkitekt og hönnunarstjóri hjá London Legacy Development Corporation, Mikael Schiller, stjórnarformaður og stofnandi ACNE, Marco Steinberg, „strategic designer“ og fyrrum stjórandi Helsinki Design Lab.

Hér má sjá dagskrá DesignTalks 2014

Eins og titill fyrirlestradagsins, Dealing with Reality, gefur til kynna verður rauði þráðurinn áskoranir raunveruleikans og í því samhengi verður áhersla lögð á hönnuði og arkitekta sem stefnumótandi hugsuði og hugsjónafólk með framtíðarsýn. Þá verður í því samhengi velt upp samspili hins raunverulega heims og þess ímyndaða, fantasíu og sýndarveruleika.

Áskoranir raunveruleikans verða til umfjöllunar út frá margbreytilegum sjónarhornum, m.a. uppbyggingu fatahönnunarmerkis, samfélagsbreytingum, nýjum nálgunum í borgarskipulagi, stjórnsýslu, listrænni stjórnun og tækninýjungum. Þá verða rædd ný hlutverk hönnuða og arkitekta og hönnun verður skoðuð sem leiðandi afl á breyttum tímum, í óvæntu samhengi og samstarfi.

Dagskrárstjórn er í höndum Hlínar Helgu Guðlaugsdóttur, hönnuðar, listræns stjórnanda og kennara við Konstfack, University College of Arts, Crafts and Design, Stokkhólmi. Hlín Helga mun einnig sinna fundarstjórn með Stephan Sigrist, stofnanda svissnesku hugveitunni W.I.R.E (Web for Interdisciplinary Research Expertise), sem leggur áherslu á þverfaglegt samstarf rannsókna og atvinnulífs og framtíðarrýni.