HönnunarMars 2013 | Skráning viðburða




Frestur til að skrá viðburði rennur út á miðnætti fimmtudaginn 7. febrúar. Viðburðum hátíðarinnar er miðlað á heimasíðu HönnunarMars, www.honnunarmars.is, í appi og í prentuðu dagskrárhefti.

Til að sækja um skráningu viðburðar í dagskrá HönnunarMars fyllir þú út eyðublaðið á skráningarvefnum sem finna má hér. Með skráningunni skulu fylgja myndir í prentupplausn sem eru lýsandi fyrir viðburðinn. Myndefni skal vera merkt nafni viðburðar og sent á myndir@honnunarmidstod.is.

Myndir skulu vera án texta nema viðfangsefnið sé texti. Góð mynd og vel unnin skráning eykur líkur á birtingu.

Athygli skal vakin á því að skráningar þeirra sem ekki eru í fagfélögum Hönnunarmiðstöðvar verða teknar sérstaklega fyrir í stjórn HönnunarMars, sem áskilur sér rétt til að hafna skráningunum uppfylli þær ekki kröfur um þátttöku.

Skráningargjald fyrir aðila sem ekki eru skráðir í fagfélög Hönnunarmiðstöðvar er 15.000 kr. og er gjaldið innheimt þegar skráning hefur verið samþykkt af stjórn HönnunarMars.

Ef óskað er frekari upplýsinga má hafa samband í tölvupósti á ritstjorn@honnunarmidstod.is og í síma Hönnunarmiðstöðvar Íslands: 771 2200.