Upplýsingar fyrir þátttakendur í HönnunarMars

Skráning þátttöku í HönnunarMars 2012

Opnað hefur verið fyrir skráningar í dagskrá HönnunarMars sem fram fer dagana 22. - 25. mars 2012.

Aðildarfélög Hönnunarmiðstöðvar vinna nú að dagskrá sinni og mörg þeirra standa fyrir samsýningu félagsmanna sinna. Undirbúningshópurinn hvetur hönnuði í fagfélögum Hönnunarmiðstöðvar, sem hyggjast taka þátt í dagskránni, til að setja sig í samband við verkefnisstjóra viðkomandi félags. Aðrir þátttakendur geta skráð viðburð sinn skv. upplýsingum hér að neðan.

Frestur til að skrá viðburði rennur út miðvikudaginn 15. febrúar nk.

Skráning:

Þú hleður niður skráningareyðublaði sem þú finnur hér. Vistaðu því næst skjalið með nafni viðburðarins, fylltu úr skráningarblaðið, vistaðu og sendu á verkefnisstjóra fagfélagsins þíns. Ef þú ert ekki meðlimur í einum af fagfélögum Hönnunarmiðstöðvar sendu þá skráninguna á ritstjorn@honnunarmidstod.is.

Í skráningareyðublaðinu þurfa eftirfarandi atriði að koma fram: nafn viðburðar, staðsetning, opnunartími, tengiliður, fagfélag og texti um viðburð. Auk þess er mikilvægt að fylgi með stuttur hnitmiðaður texti sem segir frá viðburði í innan við 300 slögum.

Leiðbeinandi opnunartímar í HönnunarMars eru:
  • fimmtudagur 22. mars kl. 11 - 18
  • föstudagur 23. mars kl. 11 - 18
  • laugardagur 24. mars kl. 11 - 17
  • sunnudagur 25. mars kl. 13 - 17

Með skráningunni skulu fylgja myndir í prentupplausn sem eru lýsandi fyrir viðburðinn. Myndir eiga að vera merktar sama nafni og viðburðurinn. Góð mynd og vel unnin skráning eykur líkur á birtingu.

Athygli skal vakin á því að skráningar þeirra sem ekki eru í fagfélögum Hönnunarmiðstöðvar verða teknar sérstaklega fyrir í stjórn HönnunarMars, sem áskilur sér rétt til að hafna skráningunum uppfylli þær ekki kröfur um þátttöku.

HönnunarMars hefur stimplað sig rækilega inn, bæði meðal hönnuða en líka í borginni allri. Hann boðar vorkomuna og um leið gróskuna í íslenskri hönnun. Þar sem vel hefur tekist til verður haldið áfram á sömu braut en samhliða kynntar nýjungar í dagskrá.

Þverfagleg samvinna milli greina og út fyrir svið hönnunar verður í brennidepli á HönnunarMars í ár, þar sem leiðandi hönnuðir í heiminum í dag taka þátt í sérstakri dagskrá fyrir hönnuði, atvinnulíf og almenning.