HönnunarMars fer fram í fjórða skiptið, dagana 22. - 25. mars 2012. Frá upphafi hafa það verið íslenskir hönnuðir sem bera hitann og þungann af dagskrá hátíðarinnar sem spannar langa helgi og býður til ótal viðburða, innsetninga og sýninga.
HönnunarMars er fjögurra daga hönnunarhátíð í Reykjavík þar sem
dagskráin er barmafull af fjölbreyttum og spennandi viðburðum af ýmsu
tagi. Hönnuðir bjóða almenningi að kynna sér heim hönnunar með
áhugaverðum sýningum og fróðlegum fyrirlestrum sem endurspegla
fjölbreytta flóru íslenskrar hönnunar og arkitektúrs.
Á fyrirlestradegi HönnunarMars, stíga fjórir framsæknir hönnuðir á svið í
Gamla Bíó. Þeir eru
Marije Vogelzang,
Tuomas Toivonen,
Koert van Mensvoort,
og
Hjalti Karlsson. Meginþema fyrirlestradagsins er samstarf -
mikilvægi þess að sækja sér þekkingu úr hinum ýmsu áttum og deila
sérþekkingu milli fagsviða.
Nánari upplýsingar um fyrirlestradaginn má
finna hér.
Hönnun á Íslandi er ekki ný af nálinni en gríðarlegur árangur og
vitundarvakning hefur átt sér stað á undanförnum árum. HönnunarMarsinn spannar vítt svið, allt frá helstu hönnuðum
þjóðarinnar sem sýna hvað í þeim býr, til nýútskrifaðra hönnuða
sem stíga sín fyrstu skref. Á HönnunarMars er hönnun kynnt
sem atvinnugrein sem byggir á traustum grunni og gegnir veigamiklu hlutverki í samtímanum.
Aðferðafræði hönnunar býr yfir einstökum tækifærum til sköpunar
og endursköpunar. HönnunarMarsinn örvar, hvetur og ýtir undir
sköpun því að þar mætast hönnuðir, fyrirtæki, framleiðendur og
kaupendur; nýir möguleikar og tækifæri verða til.
HönnunarMars er boðberi
vorsins og gróskunnar í íslenskri hönnun og lífleg bæjarhátíð. Á HönnunarMars býðst tækifæri að auðga andann og hljóta
innblástur af hinni taumlausu sköpunargleði sem ríkir innan
hönnunarsamfélagsins.
Við hlökkum til að sjá þig á HönnunarMars 2012.