HönnunarMars 2015 | Hönnuðir hittast
Hönnuðir hittast eru opnir fræðslu- og spjallfundir sem snúast að miklu leyti um HönnunarMars og sitthvað hagnýtt sem tengist þátttöku í hátíðinni. Einnig er fundunum ætlað að taka á viðfangshefnum sem tengjast hönnunarsenunni í víðara samhengi.
Starfsfólk Hönnunarmiðstöðvar og góðir gestir úr hönnunarsamfélaginu taka til máls.
Fundirnir eru upplagðir ef:
• Þú hefur áhuga á því að vera með viðburð á HönnunarMars 2015
• Þú vilt fá hagnýtar upplýsingar um þátttöku á HönnunarMars 2015
• Þig langar til að nýta þau tækifæri til fullnustu sem HönnunarMars getur gefið þér
• Þú vilt tengast fólki í hönnunargeiranum og/eða bæta tengslanet þitt enn betur
Hönnuðir hittast einu sinni í mánuði í aðdraganda HönnunarMars, dagsetningar fyrir HönnunarMars 2016 eru eftirfarandi:
Miðvikudagurinn 14. október
Fimmtudagurinn 12. nóvember
Fimmtudagurinn 10. desember
Fimmtudagurinn 7. janúar
Fimmtudagurinn 4. febrúar
Fimmtudagurinn 3. mars
Verið með í Hönnuðir hittast hópnum á Facebook, hann finnið þið
hér.