Dagskrá HönnunarMars 2010 | Vöruhönnun

Skepnudraumar í skógum | Katrín Ólína

CRYMOGEA, Barónsstígur 27, 101 Reykjavík
18.03 - 21.03

Í salarkynnum bókaútgáfunnar Crymogeu setur hönnuðurinn Katrín Ólína upp myndir og gripi úr náttúrunni handan spegilsins.

Lífríki fjölskipaðra hulduskóga hefur verið lokkað út úr heimkynnum sínum. Suma gripina má taka með sér heim gegn endurgjaldi í verðmætum hérna megin spegilsins. Aðra verður að skilja eftir til að spegillinn geti fengið þá að nýju. Sérstök opnun sýningarinnar verður miðvikudagskvöldið 17. mars og hefst hún klukkan 20:30.














Dagskrá