Dagskrá HönnunarMars 2010 | Leir- og textílhönnun

Kúlan | Sýning

Sævar Karl, Bankastræti 7, 101 Reykjavík
18.03 - 20.03

Bryndís Bolladóttir kynnir línuna Kúlan í verslun Sævars Karls í Bankastræti.

Kúlan bregður á leik, hún getur verið snagi, hitaplatti, skraut, leikfang og hljóðdempari. Línan er unnin á Íslandi og framleidd úr íslenskri þæfðri ull. Kúlan er einnig til sölu og sýnis í versluninni Minju á Skólavörðustíg 12 og í safnbúð Þjóðminjasafns Íslands.

Píanóleikur og gleði verður við völd föstudaginn 19. mars frá 16 til 18 og laugardaginn 20. mars frá 14 til 16.

Sjá nánar á www.bryndisbolladottir.com.
















Dagskrá